Níu meðlimir hinnar þjóðþekktu Kennedy-fjölskyldu lögðu í gær fram stefnu þar sem þess er krafist að Donald Trump Bandaríkjaforseti hætti við byggingu sigurboga sem hann ætlar að reisa á Columbia-eyjunni í Washington.
Sigurboginn á að vera sá hæsti sinnar tegundar í heiminum eða rúmlega 76 metrar á hæð. Svo lesandi geti glöggvað sig á hæðinni má nefna að Turninn á Smáratorgi í Kópavogi er 78 metrar á hæð, en það er hæsta bygging á Íslandi.
Óvissa hefur ríkt um Sigurbogann frá því að alríkisdómari meinaði ríkisstjórninni í síðustu viku að hefja framkvæmdir svo dómstóllinn hefði tíma til að meta lögmæti framkvæmdanna.
Kennedy-fjölskyldan óttast að sigurbogi af þessari hæð muni varpa skugga á gröf John F. Kennedy, fyrrum Bandaríkjaforseta, sem hvílir í Arlington-þjóðarkirkjugarðinum.
Í stefnunni segir:
„Donald J. Trump forseti er að reyna að reisa gríðarstóran sigurboga, með ólögmætum hætti, sem mun til frambúðar varpa skugga á og skaða sögulega sjónlínur að núverandi grafreit og minnisvörðum sem reistir hafa verið til heiðurs Kennedy-fjölskyldunni í Arlington-þjóðarkirkjugarðinum, sem og að minnisvörðum hundrað þúsunda fallinna bandarískra hetja.“
Washington Post áætlar að boginn muni varpa skugga á grafreitinn með einum eða öðrum hætti þorrann úr árinu, eða 284 daga.
Innviðaráðuneytið hefur borið því við að skuggavarpið muni aðeins eiga sér stað í um klukkustund skömmu eftir sólarupprás. Því sé skuggavarpið ekki umfangsmikið.
Meðal þeirra sem standa að stefnunni eru sjö börn systkinabörn fyrrum forsetans, börn Roberts F. Kennedy og þar með systkini heilbrigðisráðherrans, Roberts F. Kennedy yngri. Hinir stefnendurnir eru fyrrum þingmaðurinn Joe Kennedy, sem er bróðursonur heilbrigðisráðherrans, og Edward M. Kennedy yngri, sonur Ted Kennedy og þar með bróðursonur fyrrum forsetans.