Pressan

Teletubbies sólarbarnið afhjúpar ótrúlega upphæð sem hún fékk fyrir hlutverkið

Mynd
Mynd: Skjáskot YouTube.

Tinky Winky, Dipsy, Laa-Laa og Po urðu þekkt nöfn víða um heim sem Stubbarnir (Teletubbies) í breskum gaman- og fræðsluþætti fyrir börn sem framleiddur var af BBC og sýndir frá 1997 til 2001, ásamt endurgerðum árin 2015 og 2022. 

Stúlkan á bak við sólina var hins vegar óþekkt, þrátt fyrir að vera ein þekktasta persóna þáttanna. Jess Smith, sem nú er 31 árs og tveggja barna móðir, var aðeins níu mánaða gömul þegar hún fékk þetta fræga hlutverk:

„Mamma fór með mig á sjúkrahúsið í almenna skoðun og starfsfólkið var spurt hvort það gæti sent framleiðslufyrirtækinu nöfn á börnum svo þau gætu komið fram í nýjum sjónvarpsþáttum. Mamma samþykkti. Þaðan fór ég í nokkrar áheyrnarprufur, ég geri ráð fyrir til að vera viss um að ég gæti hlegið eftir pöntun og hvernig hláturinn minn hljómaði, og að lokum fékk ég hlutverkið.“

En þrátt fyrir að hafa orðið andlit eins stærsta barnasjónvarpsþáttar síns tíma fékk Smith aðeins 250 pund (tæpar 41 þúsund krónur) og nokkur tuskudýr.

„Það er bara tvennt sem ég veit, mitt hlutverk var tekið upp í húsi eins framleiðandans og upprunalega kvikmyndasettið er nú fullt af vatni þar sem landeigandinn var pirraður út í gestina.“

Mynd
Jess Smith.

Og þrátt fyrir að hafa verið vinsæll sjónvarpsþáttur fyrir börn, viðurkenndi Smith að hún hefði aldrei horft á þættina sem barn.

„Ég man alls ekki eftir að hafa horft á þetta, ég hef aldrei verið sú sem talaði um þáttinn eða framkomu mína í honum. Það hefur alltaf verið hluti af lífi mínu og eitthvað sem ég held fast við. Núna er ég mamma í fullu starfi og ég myndi ekki skipta því fyrir neitt í heiminum. Mér finnst dásamlegt að vera heima með stelpunum mínum og ég vona að það haldist. Þær vita af Teletubbies, við horfum á þá af og til. Þær vita báðar að þetta er ég í sólinni og segja „mamma“ og benda á hana.“