Dönsk stjórnvöld hafa ákveðið að hafnirnar við Halsskov á Sjálandi og Knudshoved á Fjóni skuli settar í stand til að geta tekið við ferjum með skömmum fyrirvara ef til þess kemur að Stórabeltisbrúin lokist.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Sund & Bælt sem annast rekstur Stórabeltisbrúarinnar.
Þessar aðgerðir eru hluti af stórum pakka þar sem verið er að styrkja innviði og viðbragðsgetu landsins.
Stórabeltisbrúin gegnir lykilhlutverki varðandi samgöngur yfir Stórabelti og þar með vöruflæði. Af þessum sökum verður varaáætlun að vera til staðar ef brúin verður ónothæf um langa hríð er haft eftir Frederik Fisker hjá Sund & Bælt.
Hafnirnar hafa ekki verið notaðar fyrir ferjur síðan 1998. Þess vegna þarf að grípa til umfangsmikils viðhalds ef neyðarferjur eiga að geta notað þær.