Elizabeth Siders móðir 16 barna sem fundust í hryllingshúsinu í Ohio í Bandaríkjunum er barnshafandi.
Thomas Stolley lögmaður hennar staðfestir við miðla vestanhafs að hún sé barnshafandi. Mánudaginn 9. nóvember mætti Siders fyrir dóm og var dæmd hæf til að standa fyrir réttarhöldum.
Börnunum sextán, sem eru á aldrinum 18 mánaða til 18 ára, var bjargað af heimili fjölskyldunnar í Hamden í Ohio í júní.
Elizabeth og eiginmaður hennar, Gary Siders yngri, voru handtekin ásamt foreldrum hans, Christinu og Gary Siders eldri. Þau voru öll ákærð í yfir tylft ákæruliða fyrir að hafa brotið gegn börnunum. Elizabeth og Gary yngri eru einnig ákærð fyrir kynferðislega misnotkun og kynferðislega hegðun gagnvart ólögráða einstaklingi í öðru máli. Þau hafa neitað sök.
Þótt Elísabet hafi verið lýst hæf til að standa fyrir réttarhöldum var Christina, sem átti húsið þar sem börnin fundust, lýst óhæf eftir hæfnisyfirheyrslu. Christina hefur „nokkra áhættuþætti fyrir heilaæðasjúkdóma og ítarlegt taugasálfræðilegt mat er nauðsynlegt til að ákvarða hvort vitsmunaleg skerðing hennar stafi af einkennum vitglapa,“ var skrifað í læknaskýrslu.
Gary eldri hafði áður verið úrskurðaður óhæfur til að standa fyrir réttarhöldum, en Gary yngri bíður enn eftir niðurstöðum hæfnisyfirheyrslu sinnar.
Andy Wilson, saksóknari Ohio, sagði að börnin hefðu fundist við „hörmulegar aðstæður“ og að sum þeirra hefðu þurft á læknisaðstoð að halda. Tvö börn voru flutt með sjúkrabifreið á áfalladeild til aðhlynningar.