Pressan

Óhugnanleg brot fyrrverandi raunveruleikastjörnu – Hlaut lífstíðardóm

Mynd

Bandaríkjamaðurinn Tony McCollister, sem varð þekktur fyrir þátttöku sína í raunveruleikaþætti um makaskipti, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fimm ára stúlku.

McCollister, sem er 44 ára, hlaut dóminn í Ohio í Bandaríkjunum og getur í fyrsta lagi sótt um reynslulausn eftir 15 ár. Fyrrverandi kærasta hans, Erica Grove, var dæmd í sjö ára fangelsi fyrir aðild sína að brotunum.

Breska blaðið Daily Star greinir frá málinu.

McCollister var sakfelldur fyrir nauðgun, kynferðisbrot og að hafa stofnað barni í hættu. Hann hafði áður játað brot sem tengdust vörslu barnaníðsefnis og kynferðislegu ofbeldi gegn dýrum.

Við réttarhöldin kom fram að McCollister og Grove hefðu skipst á þúsundum skilaboða um kynferðislegt ofbeldi gegn stúlkunni. Saksóknarar lýstu því hvernig þau hefðu misnotað barnið og nýtt sér varnarleysi þess.

Ekki kemur fram í fréttum af málinu hvernig McCollister og Grove tengdust stúlkunni.

McCollister kom fram í raunveruleikaþættinum Neighbors With Benefits árið 2015, en þar var fylgst með hjónum sem stunduðu makaskipti.

Faðir stúlkunnar lýsti í yfirlýsingu til dómstólsins þeim djúpstæðu áhrifum sem brotin hafa haft á dóttur hans. Hún glími meðal annars við martraðir og kunni að þurfa á sálfræðimeðferð að halda alla ævi.