Ein vinsælasta göngubrúin í Bristol á Englandi er Pero‘s brúin en hún hrundi nýlega og er talið hugsanlegt að það hafi gerst vegna þess að hávær tónlist var leikin nærri henni á hrekkjavökunni.
Brúin, sem er í miðborginni, er byggð til að geta opnast fyrir báta sem eiga leið um. Lyftibúnaðurinn bilaði í sumar og var brúin látin vera opin eftir það en að kvöldi 31. október hrundi hluti hennar ofan í vatnið.
The Independent hefur eftir Andrew Brown, sem situr í borgarstjórn, að titringur frá háværri tónlist gæti hafa verið dropinn sem fyllti mælinn en ekki sé heldur hægt að útiloka að vindhviða eða mikill umferðarþungi í nágrenninu hafi valdið hruni brúarinnar.
Brown sagði að unnið sé að áætlun um hvernig eigi að takast á við málið og sé markmiðið að brúin verði tilbúin til notkunar á nýjan leik fyrir næsta sumar.
Áður en brúin hrundi var ljóst að hún þarfnaðist mikilla viðgerða og áttu þær að hefjast í nóvember.