Undarlegt og lífshættulegt trend hefur notið sívaxandi vinsælda meðal sænskra ungmenna að undanförnu. Taka ungmennin lyf gegn niðurgangi til að komast í vímu.
„Þetta getur verið hættulegt og í versta falli dregið fólk til dauða. Þetta er ótrúlega hættulegt. Þetta hefur áhrif á hjartað og fólk hefur látist af þessu,“ sagði Annika Svedberg, lyfsali, í samtali við TV4 Nyheterne.
Hugmyndin á bak við þetta er ekki ný af nálinni en nýlega áttaði starfsfólk sænskra apóteka sig á að sala á lyfjum gegn niðurgangi hafði aukist mikið. Á sama tíma var mikil dreifing á samfélagsmiðlum á upplýsingum um lyfin og vímugefandi áhrifum þeirra.
Til að bregðast við þessu hefur sænska lyfjaeftirlitið takmarkað sölu á slíkum lyfjum við tvo pakka á mann. Mörg apótek hafa einnig tekið lyfin úr hillum og verða viðskiptavinir að bera sig eftir þeim við starfsfólkið.