Donald Trump Bandaríkjaforseti var ekki sáttur við niðurstöður kosninganna árið 2020, þegar Joe Biden var kjörinn forseti. Þetta hefur ekki farið fram hjá mörgum enda heldur Trump því enn fram að brögð hafi verið í tafli. Frægt varð það þegar stuðningsmenn Trumps reyndu að koma í veg fyrir að kjör Bidens yrði staðfest í þinghúsinu þann 6. janúar árið 2021.
Eftir allt þetta fjaðrafok kemur það líklega mörgum á óvart að lesa um bréf frá Trump sem beið Bidens á forsetaskrifstofunni, en Biden segir frá því í nýrri bók sinni, Promise me, America.
Bréfið kom Biden svo á óvart að hann lýsir því í bók sinni að það sé eins og Trump sé í rauninni tveir ólíkir menn.
„Það var nánast eins og það væru tveir Donald Trump,“ skrifaði Biden en hann útskýrir þetta nánar í samtali við People þar sem hann segir um bréfið:
„Það hefði getað verið skrifað til mín af forverum mínum, Kennedy, Johnson eða George Bush. Ég meina, það var háttvíst, örlátt og algjörlega í ósamræmi við þá tegund forseta sem Trump hafði verið.“
Trump skrifaði meðal annars í bréfinu:
„Margir forsetar hafa komið og farið sem stjórnuðu einfaldlega sem repúblikanar eða demókratar. Þessir menn, að mestu, breyttu ekki sögunni heldur bárust hreinlega með óstöðvandi straumi hennar. Það verður ekki raunin hjá þér því ég veit hversu heitt þú elskar bandarísku þjóðina.“
Trump skrifaði að Biden hefði nú vonir og drauma heillar þjóðar á öxlum sínum og sagðist Trump hafa fulla trúa á Biden til að standa undir þeirri ábyrgð.
„Styrkur þinn, dýpsta uppspretta orku þinnar, kemur frá vitneskjunni um að milljónir á milljónir ofan treysta á þig. Langanir þeirra og væntingar eru ástæðan fyrir því að þú ert hér, þar sem margir reiða sig á að þér takist vel til.“
Biden segir í bók sinni að þetta hafi ekki verið í nokkru samræmi við þann Trump sem nokkrum vikum áður hafði hvatt til áhlaups á þinghúsið og þar með grafið undan stoðum lýðræðisins.
„En þarna var hann kominn, að óska mér góðs gengis með hlýju sem minnti helst á gamlan vin.“
Hvíta húsið hefur staðfest tilvist bréfsins og að Biden fari rétt með innihald þess, hins vegar segir samskiptafulltrúi Hvíta hússins, Steven Cheung, í yfirlýsingu vegna málsins:
„Joe Biden hefði betur tekið mark á viturlegum orðum forsetans. Þess í stað reyndi hann að tortíma þessu landi og beita réttarkerfinu sem vopni gegn pólitískum andstæðingum sínum. Biden er til skammar og Bandaríkin eru betur sett nú þegar hann er ekki lengur í embætti.“
Ætla má því að Cheung hafi ekki ritað umrætt bréf til Bidens.