Pressan

Nýjar upplýsingar um Chris Watts vekja athygli – „Þeir gera hvað sem er fyrir hann“

Mynd
Chris Watts. Mynd/Weld County DA

Chris Watts, sem myrti barnshafandi eiginkonu sína og tvær ungar dætur árið 2018, er sagður hafa myndað náin tengsl við nokkra karlkyns samfanga sína.

Samkvæmt heimildum Daily Mail hafa fangaverðir meðal annars þurft að grípa inn í vegna gruns um óviðeigandi samband hans við annan fanga. Breska blaðið fjallar ítarlega um málið í dag og hefur meðal annars rætt við starfsmann Dodge-fangelsisins í Wisconsin, þar sem Watts afplánar lífstíðardóm.

Starfsmaðurinn heldur því fram að yngri fangar sæki mjög í félagsskap Watts, sem er 41 árs, og keppist jafnvel um athygli hans.

„Yngri strákarnir flykkjast að Chris. Hann hefur mikil áhrif á þá og þeir gera yfirleitt hvað sem er fyrir hann,“ segir starfsmaðurinn við Daily Mail.

Samkvæmt frásögn hans sýnir Watts þessum föngum mikla athygli, skrifar þeim bréf og gefur þeim gjafir sem hann kaupir í fangelsisversluninni. Heimildarmaðurinn heldur því jafnframt fram að sum þessara sambanda hafi orðið kynferðisleg.

Þá segir hann að Watts hafi nýlega verið aðskilinn frá öðrum fanga vegna gruns fangavarða um að samband þeirra væri orðið óviðeigandi.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem vangaveltur vakna um náin tengsl Watts við samfanga. Árið 2020 var honum refsað eftir að persónulegir munir hans, þar á meðal nærföt og vaselín, fundust í klefa annars fanga.

Watts vakti heimsathygli árið 2018 þegar hann myrti eiginkonu sína, Shanann, sem var barnshafandi, og dætur þeirra, Bellu, fjögurra ára, og Celeste, þriggja ára. Hann reyndi í fyrstu að láta líta út fyrir að fjölskyldan væri horfin en játaði síðar morðin.

Hann afplánar nú fimm samfellda lífstíðardóma og á ekki möguleika á reynslulausn.