Pressan

Forstjóri Nvidia segir af sér vegna ástarsambanda við undirmann og meintan njósnara – „Mér þykir þetta afar leitt“

Mynd
Jensen Huang hefur leitt Nvidia á lygilegu ferðalagi fyrirtækisins á síðustu árum. Mynd/Getty

Jensen Huang hefur sagt af sér sem forstjóri tæknirisans Nvidia, en hann hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að halda framhjá eiginkonu sinni annars vegar með undirmanni og hins vegar með konu sem er talin vera kínverskur njósnari.

Tæknirisinn er eitt verðmætasta fyrirtæki heims og hefur verið á miklu flugi undanfarin misseri, enda framleiðir það örgjörva sem eru notaðir í þróun gervigreindar. Huang hefur sjálfur verið kallaður einn af guðfeðrum gervigreindar. Eftir að fréttir bárust um að önnur hjákonan væri mögulega njósnari vöknuðu áhyggjur um að Huang hefði stofnað þjóðaröryggi Bandaríkjanna eða viðskiptaleyndarmálum tæknirisans í hættu. Málið er nú rannsakað innanhúss hjá Nvidia.

Eins hefur málið haft áhrif á gengi hlutabréfa sem hefur tekið skarpa dýfu. Huang hefur gengist við framhjáhaldinu í minnisblaði til starfsmanna þar sem hann ritar: „Ég var konu minni ótrúr. Framkoma mín hefur sært hana og börn okkar. Það sem ég gerði er óafsakanlegt. Mér þykir þetta afar leitt.“