
Með nýjum lögum eru Rússar að breyta ýmsu varðandi herskyldu. Samkvæmt gömlu lögunum voru menn kallaðir til herþjónustu tvisvar á ári, á vorin og haustin. Nú verður hægt að kalla þá til herþjónustu allt árið að sögn B.T.
Þetta veitir yfirvöldum meiri sveigjanleika þegar kemur að því að fá nýja hermenn. Breytingin tekur einnig gildi á tímabili þar sem bæði Rússland og Úkraína hafa orðið fyrir miklu mannfalli.
Herskyldan mun einnig veita mönnum tækifæri til að gerast atvinnuhermenn en mörgum finnst þeir nánast þvingaðir til að skrifa undir slíka samning.
Með nýju lögunum er mönnum einnig gert erfiðara fyrir við að sleppa við eða fresta því að gegna herskyldu.