fbpx
Fimmtudagur 03.júlí 2025
Pressan

Dæmdur í fangelsi fyrir að segjast hafa barist með Wagnerhópnum í Úkraínu

Pressan
Laugardaginn 9. nóvember 2024 18:15

Nokkrir liðsmenn Wagnerhópsins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

49 ára byggingaverkamaður, Piotr Kucharski að nafni, var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í síðustu viku fyrir að hafa haldið því fram að hann hafi barist með rússneska málaliðahópnum Wagner í Úkraínu.

Hann var handtekinn eftir að hann varð árásargjarn og dró upp hníf á samkomu í Stonham Aspal í Suffolk á Englandi í október á síðasta ári. Hann var klæddur í hermannafatnað merktum Wagnerhópnum.

Metro segir að samkvæmt framburði vitna þá hafi Kucharski, sem er pólskur að uppruna en býr í Bretlandi, sagst hafa barist með Wagnerhópnum í Úkraínu. Hann hélt þessu einnig fram í færslum á Facebook og í einkaskilaboðum á samfélagsmiðlum.

Eins og fyrr sagði var hann dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi og því til viðbótar í eins árs skilorðsbundið fangelsi.

Í yfirheyrslum hjá lögreglunni sagðist hann hafa keypt Wagnermerkin og sett á fötin sín til að „vekja viðbrögð“ hjá fólki á samkomunni vegna mismunandi skoðana þeirra og hans á innrás Rússa í Úkraínu. Við leit heima hjá honum fann lögreglan mynd af Adolf Hitler, eintak af bók Hitlers, Mein Kampf, og aðra muni tengda fasistum.

Hann birti myndir á samfélagsmiðlum af mönnum í hermannabúningum og með vopn og skrifaði að hann væri erlendis að berjast.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Mörg þúsund Norðmenn fengu skilaboð fyrir mistök um milljónavinning í Lottó

Mörg þúsund Norðmenn fengu skilaboð fyrir mistök um milljónavinning í Lottó
Pressan
Fyrir 2 dögum

Flugfreyja segir að flugáhafnir stundi kynlíf í flugstjórnarklefanum – „Vélin er á sjálfstýringu“

Flugfreyja segir að flugáhafnir stundi kynlíf í flugstjórnarklefanum – „Vélin er á sjálfstýringu“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Borðaðu spergilkál og hreinsaðu heilann

Borðaðu spergilkál og hreinsaðu heilann
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum
Pressan
Fyrir 4 dögum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þóttist vera sádiarabískur prins í 30 ár – Beikon varð honum að falli

Þóttist vera sádiarabískur prins í 30 ár – Beikon varð honum að falli