Þeir hafa þróað hæfileika til að lesa í hegðun eigenda sinna og fyrri rannsóknir hafa sýnt að háþróað lyktarskyn þeirra getur greint lyktina af stressi í svita fólks.
Live Science segir að nú hafi vísindamenn komist að þeirri niðurstöðu að hundar geti ekki eingöngu fundið lykt af stressi, það hafi áhrif á tilfinningar þeirra.
Í rannsókninni, sem hefur verið birt í vísindaritinu Scientific Reports, kemur fram að vísindamennirnir hafi notað 18 hunda af ýmsum tegundum. Ellefu sjálfboðaliðar, sem þekktu ekki til hundanna, voru látnir gangast undir álagspróf. Á meðan á prófinu stóð voru sýni tekin af svita í handarkrikum þeirra og sett á efnisbúta. Því næst gengust þátttakendurnir undir afslöppunaræfingu og voru svitasýni tekin á nýjan leik þá. Svitasýni frá þremur af þátttakendunum voru síðan notuð í rannsókninni.
Hundunum var skipt í þrjá hópa og voru þeir látnir þefa af svitasýnum eins hinna þriggja þátttakenda. Áður en það var gert, voru hundarnir þjálfaðir til að vita að matardallur á einum stað innihélt góðgæti og að matardallur á öðrum stað innihélt ekkert.
Á meðan á prófinu stóð voru matardallar, sem innihéldu ekkert, stundum settir á einn af þremur óvenjulegum stöðum.
Í einu prófinu, þegar hundarnir þefuðu af stresssýni og efnisbút án stresssýnis, voru þeir síður líklegir til að nálgast matardallana á óvenjulegu stöðunum. Þetta bendir til að þeir hafi talið að ekkert góðgæti væri í þeim. Fyrri rannsókn hafði sýnt fram á að þegar hundar eiga ekki von á neikvæðri útkomu, þá kemur það fram í skapi þeirra.
Þessi niðurstaða bendir til að þegar hundar eru nærri stressuðu fólki, þá séu þeir svartsýnni á óvissar aðstæður en þegar þeir eru nálægt fólki með afslappaða lykt, þá hefur það ekki þessi áhrif á þá að sögn Zoe Parr-Cortes, aðalhöfundar rannsóknarinnar.
Hún sagði að hundar hafi lifað með okkur í mörg þúsund ár og því hafi stór hluti af þróun þeirra átt sér stað samhliða þróun okkar. Bæði hundar og fólk séu félagsverur og það séu tilfinningaleg tengsl á milli okkar. Það að hundar hafi getað greint stress hjá einhverjum í hópnum hafi líklega komið sér vel því það hafi gert þeim aðvart um ógn sem annar meðlimur hópsins hafði þá þegar tekið eftir.