Þegar lögreglumenn komu heim til hans til að leita að Holly grínaðist Nicholas við þá og sagði „kannski er hún í felum undir rúmi“.
Þetta kom fram fyrir dómi í síðustu viku þegar réttað var yfir Nicholas og vini hans, Joshua Hancock, sem aðstoðaði hann við að losna við líkamshlutana gegn 50 punda greiðslu. Þeir hentu þeim í ána Witham í Bassingham.
Vegfarandi fann suma líkamshlutana þann 25. mars en taldi í fyrstu að um dýr væri að ræða, eða þar til hann sá hönd.
Síðast sást til ferða Holly 17. mars þegar hún kom heim til sín.
Daily Mail segir að Nicholas eigi sér sögu um dýraníð og að áður en hann myrti Holly hafi drepið gæludýrin þeirra á grimmdarlegan hátt til að „refsa“ henni. Heimildarmaður sagði að Nicholas hafi eitt sinn sett hvolp Holly í þvottavélina og hafi hún fundið hvolpinn dauðann í henni. Hann er einnig sagður hafa drepið hamstrana hennar með því að setja þá í blandara og örbylgjuofn. Holly er sögð hafa leitað skjóls á lögreglustöð eitt sinn með kanínurnar sínar af ótta við Nicholas.
Móðir hennar segir Nicholas vera „grimmt skrímsli“ sem hafði sannfært Holly um að fjölskylda hennar beitti hana ofbeldi.
Nicholas og Holly höfðu verið gift í 16 mánuði þegar hann myrti hana. Þau eru sögð hafa verið við það að skilja.