fbpx
Fimmtudagur 03.júlí 2025
Pressan

Óhugnaður í skátahreyfingunni – Skátaforingi nauðgaði tíu ára börnum

Pressan
Föstudaginn 22. september 2023 07:00

Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

44 ára karlmaður hefur verið ákærður af saksóknara í Danmörku fyrir fjölda grófra kynferðisbrota. Maðurinn starfaði sem foringi innan dönsku skátahreyfingarinnar og er sakaður um að hafa nauðgað stúlkum allt niður í 10 ára aldur í ferðum á vegum skátahreyfingarinnar. Hann er einnig ákærður fyrir vörslu barnakláms.

Ekstra Bladet skýrir frá þessu og segir að maðurinn sé ákærður fyrir nauðganir, kynferðislegt ofbeldi af öðrum toga og blygðunarsemisbrot gegn fjórum 10 ára stúlkum. Er ofbeldið sagt hafa átt sér stað í skátaferðum, þar sem börnin gistu, á Sjálandi og Jótlandi árið 2017.

Maðurinn er einnig ákærður fyrir að hafa verið með mikið magn af barnaklámi í fórum sínum 2021.

Málið verður tekið fyrir hjá undirrétti í Glostrup í vikunni.

Saksóknari krefst þyngri refsingar yfir manninum en venjulega er gert í málum af þessu tagi þar sem stúlkurnar hafi verið í hans umsjá og hafi hann borið ábyrgð á kennslu þeirra og uppeldi á meðan á skátaferðunum stóð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Mörg þúsund Norðmenn fengu skilaboð fyrir mistök um milljónavinning í Lottó

Mörg þúsund Norðmenn fengu skilaboð fyrir mistök um milljónavinning í Lottó
Pressan
Fyrir 2 dögum

Flugfreyja segir að flugáhafnir stundi kynlíf í flugstjórnarklefanum – „Vélin er á sjálfstýringu“

Flugfreyja segir að flugáhafnir stundi kynlíf í flugstjórnarklefanum – „Vélin er á sjálfstýringu“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Borðaðu spergilkál og hreinsaðu heilann

Borðaðu spergilkál og hreinsaðu heilann
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum
Pressan
Fyrir 4 dögum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þóttist vera sádiarabískur prins í 30 ár – Beikon varð honum að falli

Þóttist vera sádiarabískur prins í 30 ár – Beikon varð honum að falli