Þetta eru gleðifréttir fyrir alifuglabændur sem hafa þurft að berjast við fuglaflensu undanfarin misseri. Á síðasta ári drápust að minnsta kosti 3,4 milljónir fugla eða voru aflífaðir vegna flensunnar. Þetta hafði áhrif á verslanir því eggjaskortur var í landinu.
Sky News segir að rannsóknin hafi einnig leitt í ljós að mjög ólíklegt sé að veiran berist langar vegalengdir á milli fuglabúa.
Rannsóknin byggist á rannsóknum á sjófuglum á Norðurslóðum en þeir eru sérstaklega viðkvæmar fyrir fuglaflensunni og skörfum.
Á síðasta ári drápust mörg þúsund sjófuglar á tveimur stöðum, Grassholm og Troup Head, og hefur fjöldi sjófugla á þessum stöðum ekki verið minni síðan á sjöunda áratugnum. Mun færri hafa drepist á þessu ári og telja vísindamenn að það megi rekja til að margir fuglar hafi sýkst en náð bata og séu því ónæmir fyrir veirunni.
Veiran getur borist í fuglabú frá villtum fuglum og því er mikilvægt að hægt sé að takast á við hana í villtum fuglum til að vernda fuglabúin.
En það er enn mikil óvissa tengd hvaða áhrif þetta mun hafa því fuglaveirur geta stökkbreyst og það getur haft þau áhrif að dregið getur úr virkni ónæmis. Það þýðir síðan að ekki er öruggt að ungar, sem fæðast á næsta ári, verði ónæmir og því reikna vísindamenn ekki með að heilu fuglastofnarnir muni ekki njóta góðs af þessu strax.