fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Pressan

Þetta er glæpamaðurinn sem aðstoðaði lögregluna óafvitandi – 800 handteknir

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 10. júní 2021 06:00

Hakan. Mynd:Ástralska alríkislögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Joseph Hakan Ayik, 42 ára Ástrali, lætur væntanlega lítið fyrir sér fara þessa dagana eftir umfangsmiklar lögregluaðgerðir víða um heim þar sem 800 meðlimir skipulagðra glæpasamtaka voru handteknir. Ástæðan er að hann var fyrstur til að fá farsíma með dulkóðuðu samskiptaappi sem lagði grunninn að aðgerðum lögreglunnar.

Ayik er vel tengdur inn í heim afbrotamanna, bæði heima fyrir en einnig á alþjóðavettvangi. Hann virðist hafa gegnt lykilhlutverki í aðgerð lögreglunnar sem ástralska alríkislögreglan, sú bandaríska og Evrópulögreglan Europol stóðu að í sameiningu.

Í 16 löndum voru 800 meðlimir skipulagðra glæpasamtaka handteknir. Hald var lagt á mikið magn vopna, fíkniefna og tæplega 50 milljónir dollara í reiðufé.

Hornsteinn rannsóknar lögreglunnar var samskiptaappið ANOM sem var þróað af bandarísku alríkislögreglunni FBI. Með því gátu afbrotamenn átt í dulkóðuðum samskiptum. En þeir vissu ekki að starfsmenn FBI sátu við tölvuskjái og fylgdust með öllum samskiptum þeirra. Appið var aðeins hægt að nota í sérstökum símum sem voru ekki nothæfir í neitt annað en til að hringja í og úr og fyrir ANOM appið. Það má segja að appið hafi gert lögreglunni kleift að vera í rassvasa glæpamanna.

Smávegis af því sem lögreglan lagði hald á í aðgerðinni. Mynd:Ástralska alríkislögreglan.Ást

Það er einmitt þar sem Ayik kemur inn í myndina. Hann var að sögn ástralska yfirvalda einn sá fyrsti til að nota appið og hann var iðinn við að mæla með því við félaga sína í undirheimunum. BBC skýrir frá þessu. Það voru lögreglumenn í dulargervi sem létu hann fá farsíma með appinu og út frá því náði það útbreiðslu í undirheimunum.

Ayki hefur verið eftirlýstur af áströlsku lögreglunni síðan 2011 en hann er grunaður um að vera höfuðpaurinn í stórum fíkniefnahring. Hann er talinn halda sig í Tyrklandi en hann er ættaður þaðan. Talið er að nú sé skynsamlegast fyrir hann að láta lítið fyrir sér fara því aðrir „notendur“ appsins muni hugsanlega hugsa honum þegjandi þörfina þegar þeir átta sig á að hann kom appinu í dreifingu meðal glæpamanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna áttu ekki að sofna yfir sjónvarpinu

Þess vegna áttu ekki að sofna yfir sjónvarpinu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Einn ríkasti maður Þýskalands sagður hafa sviðsett dauða sinn fyrir sex árum

Einn ríkasti maður Þýskalands sagður hafa sviðsett dauða sinn fyrir sex árum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Mikill eldur í einni elstu byggingu Kaupmannahafnar

Mikill eldur í einni elstu byggingu Kaupmannahafnar