fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Pressan

Leystu 25 ára gamalt morðmál – Bjórdós varð morðingjanum að falli

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 16. nóvember 2021 07:02

Lil' Champ Food Store

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Snemma að morgni 3. febrúar 1996 fór Terence Leslie Paquette á fætur en hann starfaði sem verslunarstjóri i Lil‘ Champ Food Store í Orange sýslu í Orlando á Flórída. Hann mætti snemma til vinnu, stimplaði sig inn klukkan 05.39, til að opna verslunina. En verslunin opnaði ekki þennan dag.

Vegfarandi veitti því athygli að ekki var búið að kveikja ljós í versluninni klukkan 06.50 og var nokkuð undrandi yfir því þar sem verslunin átti að opna klukkan sex. Vegfarandinn hafði samband við lögregluna og skömmu síðar komu lögreglumenn á vettvang. Þegar þeim tókst loks að komast inn í verslunina mætti hryllileg sjón þeim.

Inni á baðherbergi fundu þeir Terence. Hann var dáinn og alþakinn blóði. Hann hafði verið stunginn 73 sinnum og skorinn á háls að auki. „Þetta var skelfileg aðkoma, ofbeldisfullt,“ sagði Brian Svelli, lögreglumaður, um aðkomuna á vettvang að sögn WFTV.

Engin vitni voru og lögreglunni miðaði lítið við rannsókn málsins og náði ekki að leysa það. En málið gleymdist ekki alveg og þegar lögreglan í Orange sýslu setti nýja deild á laggirnar 2019 til að rannsaka gömul og óupplýst mál var þetta mál eitt af aðalmálunum sem voru tekin til rannsóknar.

Brian Savelli, sem var í nýju rannsóknardeildinni, datt í hug að reyna að nálgast lausn málsins út frá erfðafræðilegu sjónarhorni. Aðeins ári áður varð aðferðin, þar sem DNA-prófíll er notaður til að búa til ættartré hins óþekkta morðingja, fræg en þá notaði lögreglan í Kaliforníu slíka aðferð til að handsama hinn svokallaða Golden State morðingja.

„Ég hugsaði með mér að þegar einhver er stunginn 73 sinnum þá hlýtur eitthvað DNA að verða eftir sem er ekki úr fórnarlambinu,“ sagði Savelli. Hann reyndist hafa rétt fyrir sér því nokkrir blóðdropar, sem voru ekki úr fórnarlambinu, fundust á vettvangi. Þeir voru því teknir til DNA-rannsóknar 2019.

Út frá niðurstöðum rannsóknarinnar var búið til ættartré sem sýndi að blóðið var úr einhverjum sem tengdist Kenneth Stough Sr og eiginkonu hans. Sjónir lögreglunnar beindust því að þremur börnum þeirra, þar á meðal Kenneth Stough Jr. Hann og Terence höfðu nánast verið nágrannar 1996 og þess utan störfuðu þeir báðir í versluninni sem Terence var myrtur í. Þegar þessar upplýsingar lágu fyrir fékk lögreglan heimild til að vakta Kenneth.

Dag einn sá Savelli han fara út með ruslið. Hann brást skjótt við og rannsakaði það sem var í ruslapokanum. Þar voru meðal annars Budweiser bjórdósir. Á einni var munnvatn sem dugði til að taka DNA-sýni úr. Það passaði við það sem fannst í blóðdropunum, sem fundust á morðvettvanginum,  og því var Kenneth, sem er nú 54 ára, handtekinn og ákærður fyrir morðið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Fjölskyldufaðirinn lést í sumarfríi – Rangt lík kom heim í kistunni – „Hvar er faðir minn?“

Fjölskyldufaðirinn lést í sumarfríi – Rangt lík kom heim í kistunni – „Hvar er faðir minn?“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Unglingur dæmdur í ævilangt fangelsi – Stakk ellilífeyrisþega í hjartað

Unglingur dæmdur í ævilangt fangelsi – Stakk ellilífeyrisþega í hjartað
Pressan
Fyrir 4 dögum

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hún kom að eiginmanninum með annarri konu – Síðan gerði hún svolítið hræðilegt

Hún kom að eiginmanninum með annarri konu – Síðan gerði hún svolítið hræðilegt
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sérfræðingurinn segir að þetta eigir þú að borða á kvöldin ef þig langar að byrja daginn á góðum hægðum

Sérfræðingurinn segir að þetta eigir þú að borða á kvöldin ef þig langar að byrja daginn á góðum hægðum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Tíu ára drengur játar á sig morð: Var sjö ára þegar hann framdi voðaverkið

Tíu ára drengur játar á sig morð: Var sjö ára þegar hann framdi voðaverkið