fbpx
Laugardagur 16.maí 2026
433Sport

Ferguson á batavegi – Tengist ekki fyrri veikindum hans

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 4. maí 2026 08:50

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Líðan Sir Alex Ferguson er góð samkvæmt því sem kemur fram í breskum miðlum.

Ferguson var mættur á leik Manchester United og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í gær en leið ekki vel og var fluttur á sjúkrahús. Talið er að það hafi verið í varúðarskyni.

Þar var Skotinn skoðaður, eins og hafði reyndar líka verið gert á Old Trafford, og er hann á batavegi og við fína heilsu ef marka má fréttir að utan.

Ferguson veiktist og gekkst undir aðgerð vegna heilablæðingar árið 2018, en tekið er fram að veikindin í gær tengist þeim veikindum ekki á nokkurn hátt.

Michael Carrick, stjóri United, tjáði sig um fréttirnar af Ferguson eftir leikinn gegn Liverpool, sem vannst 3-2.

„Við vonum bara að hann sé í lagi. Við erum öll að hugsa til hans og vonandi líður honum betur eftir úrslitin,“ sagði Carrick, sem lék auðvitað undir stjórn Ferguson í mörg ár, eftir leik.

Ferguson stýrði United í 26 ár og vann meðal annars 13 Englandsmeistaratitla og Meistaradeildina tvisvar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Barcelona vill setjast niður við samningaborðið

Barcelona vill setjast niður við samningaborðið
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Íþróttavikan: Lífsnauðsynlegir bikarsigrar og City heldur pressunni á Arsenal

Íþróttavikan: Lífsnauðsynlegir bikarsigrar og City heldur pressunni á Arsenal
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta er samningurinn sem United er búið að bjóða Carrick – Búist við að hann skrifi undir um helgina

Þetta er samningurinn sem United er búið að bjóða Carrick – Búist við að hann skrifi undir um helgina
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Hefur aldrei dottið í hug að segja upp störfum á Anfield

Hefur aldrei dottið í hug að segja upp störfum á Anfield
433Sport
Í gær

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar
433Sport
Í gær

Kynþokkafyllsta kona Bretlands gerir allt vitlaust með léttklæddum myndum

Kynþokkafyllsta kona Bretlands gerir allt vitlaust með léttklæddum myndum