fbpx
Fimmtudagur 03.júlí 2025
Pressan

Nýjasta æðið í Hollywood – Sprauta vef úr dánu fólki í líkamann

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 10. febrúar 2020 20:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árum saman hefur verið vinsælt meðal Hollywoodleikara og annarra stjarna að láta sprauta Botoxi og öðru í líkamann til að fela hrukkur og aðra fylgifiska hærri aldurs. En nú er nýtt æði skollið á í baráttunni við elli kerlingu og einkenni hennar.

Það er dr. Leif Rogers, sem er þekktur lýtalæknir í Beverly Hills, sem hefur tekið nýja aðferð í gagnið fyrir þá sjúklinga sem dreymir um að yngjast í útliti. Hann notar efni sem heitir Reneva en það er unnið úr fituvef látins fólks.

„Til að segja það eins og það er þá er Reneva unnið úr vef mannslíka sem hefur verið ánafnað til verksins. Þegar við eldumst missum við oft fyllinguna í kinnum og undir augunum og því vilja margir láta sprauta einhverju inn sem eykur fyllinguna því það lætur okkur líta út fyrir að vera yngri.“

Segir Rogers um þetta en margar stjörnur eru á meðal viðskiptavina hans.

Fituvefurinn dugir lengur en önnur efni og þykir því henta vel.

Rogers segir að sá munur sé á að nota vef úr látnu fólki að hann örvi framleiðslu fitufruma í líkama sjúklingsins. Það gerist ekki þegar notuð er fita sem tekin af öðrum líkamshluta sjúklingsins. Til dæmis þegar fita er sogin úr lærum eða mitti til að nota í andlit, afturenda eða í brjóstin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Mörg þúsund Norðmenn fengu skilaboð fyrir mistök um milljónavinning í Lottó

Mörg þúsund Norðmenn fengu skilaboð fyrir mistök um milljónavinning í Lottó
Pressan
Fyrir 2 dögum

Flugfreyja segir að flugáhafnir stundi kynlíf í flugstjórnarklefanum – „Vélin er á sjálfstýringu“

Flugfreyja segir að flugáhafnir stundi kynlíf í flugstjórnarklefanum – „Vélin er á sjálfstýringu“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Borðaðu spergilkál og hreinsaðu heilann

Borðaðu spergilkál og hreinsaðu heilann
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum
Pressan
Fyrir 4 dögum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þóttist vera sádiarabískur prins í 30 ár – Beikon varð honum að falli

Þóttist vera sádiarabískur prins í 30 ár – Beikon varð honum að falli