The Guardian segir að faðir hins látna hafi einnig sett sig í samband við lögregluna af því að hann náði ekki sambandi við hann. Ekki er enn vitað hvað varð unga manninum að bana en vegna ástands líksins þurfti lögreglan að fá sérhæfða réttarmeinafræðinga til að bera kennsl á líkið og framkvæma nauðsynlegar rannsóknir á því.
Herbergi unga mannsins er innst á gangi. Íbúarnir sjá sjálfir um þrif svo engin lagði leið sína í herbergið.