fbpx
Fimmtudagur 03.júlí 2025
Pressan

Kjallarinn í húsi fjölskyldunnar fylltist af blóði | Húsið metið óíbúðarhæft

Ritstjórn Pressunnar
Föstudaginn 18. október 2019 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skelfileg sjón blasti við Nick Lestina, íbúa í bænum Bagley í Iowa í Bandaríkjunum, þegar hann kom heim til sín þann 3. október síðastliðinn. Blóð, fita og annar ófögnuður fyllti kjallarann á heimili fjölskyldunnar sem hefur nú verið úrskurðað óíbúðarhæft – tímabundið að minnsta kosti.

Þannig er mál með vexti að í næsta húsi við Nick og fjölskyldu hans er sláturhús þar sem nautgripum og svínum er meðal annars slátrað. Lagnir húsanna eru samtengdar og virðist stífla hafa gert það að verkum að blóð, fita og líkamsvefir sulluðust upp úr niðurfallinu á heimili Nicks – og það ekki í neinu smámagni.

Nú þegar hálfur mánuður er liðinn síðan Nick varð fyrst var við lekann vellur enn upp úr niðurfallinu. Í frétt Des Moines Register kemur fram að heilbrigðiseftirlitið í Iowa hafi metið húsið óíbúðarhæft, á meðan ekki hefur tekist að koma í veg fyrir lekann. Sú vinna stendur yfir en verkefnið er ýmsum vandkvæðum bundið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Mörg þúsund Norðmenn fengu skilaboð fyrir mistök um milljónavinning í Lottó

Mörg þúsund Norðmenn fengu skilaboð fyrir mistök um milljónavinning í Lottó
Pressan
Fyrir 2 dögum

Flugfreyja segir að flugáhafnir stundi kynlíf í flugstjórnarklefanum – „Vélin er á sjálfstýringu“

Flugfreyja segir að flugáhafnir stundi kynlíf í flugstjórnarklefanum – „Vélin er á sjálfstýringu“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Borðaðu spergilkál og hreinsaðu heilann

Borðaðu spergilkál og hreinsaðu heilann
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum
Pressan
Fyrir 4 dögum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þóttist vera sádiarabískur prins í 30 ár – Beikon varð honum að falli

Þóttist vera sádiarabískur prins í 30 ár – Beikon varð honum að falli