fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
433Sport

Fréttamaður RÚV vonar að Alfreð horfi í Vesturbæinn þegar hann ræður inn nýjan mann í Noregi

433
Þriðjudaginn 5. maí 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rosenborg hefur staðfest að félagið og þjálfarinn Alfred Johansson hafi komist að samkomulagi um að slíta samstarfi sínu. Gengi liðsins hefur verið ömurlegt undanfarið.

Gunnar Birgisson, fréttamaður hjá RÚV, vonast til þess að Alfreð Finnbogason, yfirmaður knattspyrnumála hjá norska félaginu horfi til Íslands þegar hann ræður arftaka.

Í tilkynningu frá félaginu segir að tími Johansson hjá Rosenborg hafi verið mikilvægur fyrir þróun félagsins, sérstaklega hvað varðar uppbyggingu og þróun ungra heimamanna í leikmannahópnum. Hins vegar hafi árangur liðsins á vellinum ekki verið nægilega góður síðasta árið.

Alfred Finnbogason þakkaði Johansson fyrir störf hans hjá félaginu. „Við viljum þakka Alfred fyrir hans framlag til Rosenborg. Hann hefur sýnt mikinn metnað, fagmennsku og tryggð við stefnu og gildi félagsins. Við óskum honum alls hins besta í framtíðinni,“ sagði Alfreð.

Gunnar vonast til þess að Alfreð Finnbogason skoði það að ráða Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfara KR sem hefur þjálfað í Noregi. Hann stýrði Haugasund árið 2024 en sagði upp störfum eftir nokkra leiki í starfi. „Rosenborg í þjálfaraleit eftir döpur ár undir stjórn Alfred Johansson,“ skrifar Gunnar.

Mynd: DV/KSJ

„Orðspor Óskars Hrafns Þorvaldssonar í Noregi er frábært og eru Haugasundsmenn búnir að átta sig á því að veðjað var á rangan hest í Sanchev Manoharan. Maður hefur heyrt galnari hugmyndir,“ segir Gunnar um Óskar Hrafn.

Ole Gunnar Solskjær er orðaður við starfið hjá Rosenborg en þetta sögufræga félag reynir að finna taktinn, Alfreð var ráðinn inn hjá félaginu í janúar og á að leiða þá uppbyggingu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Þrjú ensk stórlið á eftir níu milljarða manni – Eitt þegar haft samband

Þrjú ensk stórlið á eftir níu milljarða manni – Eitt þegar haft samband
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Hægt að kaupa miða á leikinn við Argentínu – Verður aðeins í annað skiptið í sögunni

Hægt að kaupa miða á leikinn við Argentínu – Verður aðeins í annað skiptið í sögunni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Er sjóðheitur biti fyrir sumarið en verður rándýr

Er sjóðheitur biti fyrir sumarið en verður rándýr
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Neymar birtir afar tilfinningaþrungið myndband

Neymar birtir afar tilfinningaþrungið myndband
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Barcelona veit af áhuga Aston Villa og skoða málið

Barcelona veit af áhuga Aston Villa og skoða málið
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Guardiola ætlar sér að fara í frí í heilt ár og tekur ólíklega við félagsliði aftur

Guardiola ætlar sér að fara í frí í heilt ár og tekur ólíklega við félagsliði aftur