
Í nótt var tilkynnt um ungmennaslagsmál í umdæmi lögreglustöðvar 1, sem er Austurbæ, Miðbær, Vesturbær og Seltjarnarnes. Var eitt ungmenni flutt á lögreglustöð þar sem foreldrar sóttu viðkomandi.
Frá þessu greinir í dagbók lögreglu. Í sama umdæmi gerðist það að lögregla var kölluð til vegna ökumanns sem hafði ekið bíl sínum út af og á stein skammt frá veginum. Ökumaður er grunaður um að aka undir áhrifum fíkniefna og án ökuréttinda.
Tveir menn voru tilkynntir í miðborginni vegna ógnandi tilburða. Voru báðir handteknir og fluttir á lögreglustöð. Þurfti lögregla að beita lögreglutökum alveg þangað til mennirnir voru komnir í fangaklefa, svo slæmt var ástand þeirra, segir í dagbók lögreglu.