fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
433Sport

Birta myndir af sér eftir alvarlegan árekstur á Brúnni – Ansi mörg spor í andlitið

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 5. maí 2026 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Morgan Gibbs-White hefur sýnt hversu alvarleg höfuðmeiðsli hann varð fyrir í sigri Nottingham Forest á Chelsea á mánudag.

Miðjumaðurinn kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik en þurfti að fara aftur af velli eftir aðeins 20 mínútur þegar hann lenti í hörðum árekstri við markvörð Chelsea, Robert Sánchez.

Atvikið átti sér stað þegar Gibbs-White var kominn í gegn og Sanchez kastaði sér út í boltann. Báðir leikmenn féllu til jarðar og þurftu tafarlausa aðhlynningu eftir að hafa fengið skurði í samstuðinu.

Eftir leik birti Gibbs-White mynd af meiðslunum á samfélagsmiðlum þar sem sjá mátti langan saumaskurð frá nefi upp fyrir vinstri augabrún. Þá var nefið einnig bólgið eftir höggið.

„Takk fyrir skilaboðin. Frábær sigur,“ skrifaði enski landsliðsmaðurinn með myndinni.

Sanchez birti sömuleiðis mynd af sínum meiðslum og óskaði Gibbs-White góðs bata. Báðir leikmenn þurftu að fara af velli með bundið um höfuðið eftir óhugnanlegt atvikið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Þrjú ensk stórlið á eftir níu milljarða manni – Eitt þegar haft samband

Þrjú ensk stórlið á eftir níu milljarða manni – Eitt þegar haft samband
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Hægt að kaupa miða á leikinn við Argentínu – Verður aðeins í annað skiptið í sögunni

Hægt að kaupa miða á leikinn við Argentínu – Verður aðeins í annað skiptið í sögunni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Er sjóðheitur biti fyrir sumarið en verður rándýr

Er sjóðheitur biti fyrir sumarið en verður rándýr
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Neymar birtir afar tilfinningaþrungið myndband

Neymar birtir afar tilfinningaþrungið myndband
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Barcelona veit af áhuga Aston Villa og skoða málið

Barcelona veit af áhuga Aston Villa og skoða málið
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Guardiola ætlar sér að fara í frí í heilt ár og tekur ólíklega við félagsliði aftur

Guardiola ætlar sér að fara í frí í heilt ár og tekur ólíklega við félagsliði aftur