fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Fréttir

„Seðlabankinn má ekki standa einn í baráttunni“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 20. maí 2026 10:27

Sigurður Hannesson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir að ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að hækka vexti þyngi enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila.

Hækkunin sem tilkynnt var um í morgun var þó viðbúið viðbragð Seðlabankans við þrálátri og versnandi verðbólguhorfum, að mati Sigurðar.

Hann skrifar pistil um málið á vef samtakanna þar sem hann segir það mikil vonbrigði að þrátt fyrir háa vexti spái Seðlabankinn nú yfir 5% verðbólgu að meðaltali á árinu á sama tíma og hagkerfið er að kólna, hagvöxtur veikist og atvinnuleysi eykst.

„Þessi staða undirstrikar að Seðlabankinn má ekki standa einn í baráttunni við verðbólguna. Ríki, sveitarfélög og aðilar vinnumarkaðarins þurfa öll að leggjast á eitt til að ná niður verðbólgu og skapa skilyrði fyrir lægri vexti,“ segir hann.

Samtök iðnaðarins hafa kallað eftir þjóðarsátt sem er að mati samtakanna bæði nauðsynleg og möguleg gegn þrálátri verðbólgu. Í því samhengi þurfi stjórnvöld að tryggja fyrirsjáanleika í rekstrarumhverfi fyrirtækja og halda aftur af íþyngjandi ákvörðunum.

Staða efnahagsmála hér á landi einkennist nú af hægum hagvexti, vaxandi atvinnuleysi, þrálátri verðbólgu og háum vöxtum. Verðbólguhorfur hafa versnað þrátt fyrir framleiðsluslaka í þjóðarbúinu. Í pistlinum á vef SI kemur fram að þetta sýni að vandinn verði ekki leystur með peningastefnunni einni saman. Næstu mánuðir skipti jafnframt miklu máli á vinnumarkaði og launaþróun þurfi að styðja við hjöðnun verðbólgu og stöðugleika fram á veginn.

Sjá greinina í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Maður sagður hafa elt nemendur í Lækjarskóla og ógnað þeim með hnífi

Maður sagður hafa elt nemendur í Lækjarskóla og ógnað þeim með hnífi
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ákærður fyrir nauðgun í Hafnarfirði

Ákærður fyrir nauðgun í Hafnarfirði
Fréttir
Í gær

Misjafnir dómar um kannabis-gistiheimilið í Þverholti: „Það hefði verið betri kostur að sofa í bílnum“

Misjafnir dómar um kannabis-gistiheimilið í Þverholti: „Það hefði verið betri kostur að sofa í bílnum“
Fréttir
Í gær

Ari telur rökréttast að Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ræði saman um myndun meirihluta

Ari telur rökréttast að Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ræði saman um myndun meirihluta
Fréttir
Í gær

Lögreglan svarar gagnrýni sjónarvottar vegna alvarlegs atviks í kirkjugarði – „Beiting rafvarnarvopns var besti valkosturinn“

Lögreglan svarar gagnrýni sjónarvottar vegna alvarlegs atviks í kirkjugarði – „Beiting rafvarnarvopns var besti valkosturinn“
Fréttir
Í gær

Þuríður gagnrýnir hvatningu HÍ til fólks um að fara í ökukennaranám

Þuríður gagnrýnir hvatningu HÍ til fólks um að fara í ökukennaranám