fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“

Ritstjórn DV
Laugardaginn 16. maí 2026 23:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og fyrrum bæjarstjóri, segist íhuga stöðu sína eftir að fyrstu tölur birtust en samkvæmt þeim tapar flokkur hans tveimur bæjarfulltrúum.

„Þetta eru mikil vonbrigði. Það er hægri sveifla í Hafnarfirði,“ sagði Guðmundur í samtali við RÚV. Hann segir þetta skell en að dómurinn sé fallinn. Hafnfirðingar hafi kosið þetta yfir sig og þó að hér sé aðeins um fyrstu tölur að ræða þá sé búið að leggja línurnar.

Það er ekki vanalegt í pólitík að bera ábyrgð en ég ætla að gera það hér. Ég segi að þetta er meira mín ábyrg en flokksins og ég held að þetta séu skilaboð til mín um það að ég eigi að hugsa minn gang og það ætla ég að gera. En jafnaðarmenn verða eftir sem áður ráðandi afl í Hafnarfirði, hvort sem það verður á næsta kjörtímabili eða því þarnæsta, þá verður Hafnarfjörður það kratabæli sem því ber og menn munu komast á raun um það.“

Að spurður sagði Guðmundur að það gæti vel farið svo að hann stígi til hliðar, en hann þurfi að ræða það við sitt fólk. Skilaboðin séu skýr. Samfylkingin hafi bætt við sig í síðustu kosningum en nú hafi það gengið til baka.

„Og ég hef allaf í pólitík axlað mína ábyrgð og ég skynja það að kannski er minn tími kominn. Það er bara svoleiðis. En kratar eiga eftir að láta til sín taka í Hafnarfirði þó síðar verði, það liggur ljóst fyrir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar