fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
Fréttir

Lokatölur streyma inn á talningarnótt – Hvaða meirihlutar halda velli og hvaða meirihlutar voru felldir?

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 17. maí 2026 03:09

Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Langt er liðið á talningarnótt sveitarstjórnarkosninganna og lokatölur liggja víða fyrir. Hér verður farið yfir það helsta:

Kópavogur

Lokatölur hafa borist frá Kópavogi en þar hlaut Sjálfstæðisflokkurinn 45,7% atkvæða og þar með hreinan meirihluta með 6 bæjarfulltrúa. Framsókn fer úr tveimur fulltrúum í einn með 10,3% og Samfylkingin fer úr einum í tvo með 18,9%. Viðreisn heldur sínum fulltrúa með 10,1% og Miðflokkurinn kemur nýr inn með einn fulltrúa og 10,5%. Vinstri græn og Sósíalistaflokkurinn ná ekki inn manni með annars vegar 2,8% og 1,7%.

Hafnarfjörður

Sjálfstæðisflokkurinn fær þrjá fulltrúa, tapar einum, með 27,7% en Framsókn bætir við sig þriðja fulltrúanum með 24,1%. Meirihlutinn heldur því velli. Samfylkingin fer úr fjórum fulltrúum niður í tvo með 17,8%, Viðreisn fer úr einum fulltrúa í tvo með 14,3% og Miðflokkurinn nær inn manni með 11,4%. Vinstrið hlaut 4,4% sem dugar ekki til að ná inn manni.

Suðurnesjabær

Samfylkingin og óháðir bæta við sig þriðja fulltrúanum í Suðurnesjabæ með 34% atkvæða. Sjálfstæðisflokkur tapar einum manni, fer úr þremur fulltrúum í tvo, með 25,4% en Framsókn heldur sínum tveimur fulltrúum með 22,5%. Miðflokkurinn kemur nýr inn með tvo fulltrúa og 18% greiddra atkvæða. Meirihluti Samfylkingar og Framsóknar heldur því velli.

Mosfellsbær

Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 42,2% atkvæða í Mosfellsbæ og bætir við sig fimmta fulltrúanum. Framsókn tapar tveimur fulltrúum og nær því tveimur inn með 20,8%. Samfylkingin heldur sínum fulltrúa með 10,9% og það sama á við um Viðreisn með 10,1 prósent og L-lista Vina Mosfellsbæjar með 8,5%. Miðflokkurinn nær manni inn með 7,4 prósent. Meirihluti Framsóknar, Viðreisnar og Samfylkingar er því fallinn.

Akureyri

Sjálfstæðisflokkurinn heldur sínum tveimur fulltrúum á Akureyri með 19,4% atkvæða en L-listinn tapar einum fulltrúa sínum af þremur með 19,3% atkvæða. Samfylkingin hlaut 16,7% og fer úr einum í tvo fulltrúa. Framsókn heldur báðum sínum fulltrúum með 15,1%, Miðflokkurinn heldur sínum fulltrúa með 8,1 prósent, Vinstri grænir halda sínum fulltrúa með 7,9% og Bæjarlistinn nær inn einum manni með 7,5%. Viðreisn nær ekki inn manni með 6% greiddra atkvæða. Meirihluti Bæjarlistans, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks er því fallinn.

Seltjarnarnes

Sjálfstæðisflokkurinn heldur velli á Seltjarnarnesi og er áfram með hreinan meirihluta með 51,9% atkvæða. Miðflokkurinn fær einn fulltrúa með 14,5% og sameiginlegt framboð Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra fær 2 fulltrúa með 33,6% atkvæða.

Árborg

Sjálfstæðisflokkurinn bætir aðeins við sig fylgi í Árborg og heldur sínum sex fulltrúum með 52,8% atkvæða. Framsókn heldur sínum tveimur fulltrúum með 20,8% og það sama á við um Samfylkingu sem bætir lítillega við sig en heldur sínum tveimur fulltrúum með 18,8%. Viðreisn fær einn fulltrúa með 7,6% atkvæða.

Akranes

Lokatölur hafa borist frá Akranesi og þar hlaut Sjálfstæðisflokkurinn 33,6% og heldur sínum þremur fulltrúum. Framsókn hlaut 23,6% atkvæða og missir einn fulltrúa og er þá með tvo inni. Viðreisn nær inn einum manni með 10,7% atkvæða, það sama á við um Miðflokk sem fær einn mann inn með 9,7% og Samfylkingin tapar einum fulltrúa með 22,3 prósent og fær þannig tvo fulltrúa.

Vestmannaeyjar

Sjálfstæðisflokkurinn er með hreinan meirihluta í Vestmannaeyjum, 55,7%, og bætir við sig fimmta fulltrúanum. Miðflokkurinn nær inn tveimur með 25,2% og Eyjalistinn heldur sínum tveimur fulltrúum með 19,1%. Eftir kosningarnar 2022 var meirihluti myndaður af Eyjalistanum og Flokknum Fyrir Heimaey sem bauð ekki fram í ár.

Ísafjarðarbær

Framsókn er sigurvegari kosninganna í Ísafjarðarbæ og tvöfaldar styrk sinn í bæjarstjórn með því að fara úr tveimur fulltrúum í fjóra með 34,3% atkvæða. Sjálfstæðisflokkur heldur sínum tveimur fulltrúum með 25,6% atkvæða og Samfylking kemur sterk inn með tvo fulltrúa og 19,6% atkvæða og Viðreisn kemst inn með einn fulltrúa og 16% atkvæða. Miðflokkurinn nær ekki inn manni með 4,5% atkvæða.

Hveragerði

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig þriðja fulltrúanum í Hveragerði með 43,9% atkvæða en Okkar Hveragerði fer úr þremur fulltrúum í tvo með 28,2%. Framsókn fer úr tveimur fulltrúum í einn með 14,9% og Samfylkingin nær inn einum manni með 12,9%. Meirihluti Okkar Hveragerðirs og Framsóknar er því fallinn.

Ölfus

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fimmta fulltrúanum í Ölfusi og heldur meirihluta sínum með 69,3% atkvæða en Samfylkingin fær 30,7% atkvæða og tvo fulltrúa.

Súðavíkurhreppur

Framtíðarlistinn fékk meirihluta greiddra atkvæða í Súðavíkurhreppi og þar með þrjá fulltrúa í sveitarstjórn. Fjarðarlistinn fékk tvo fulltrúa kjörna.

Vesturbyggð

N-listi Nýrrar Sýnar heldur meirihluta sínum í Vesturbyggð með fjóra sveitarstjórnarmenn á meðan V-listi Sterkari Vesturbyggðar fær þrjá fulltrúa.

Húnabyggð

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fimmta fulltrúanum í Húnabyggð með 50,7% greiddra atkvæða og Framsókn heldur sínum þremur fulltrúum með 33,9 prósent. A-listinn, óháð framboð, fær einn fulltrúa með 15,4% atkvæða.

Skagafjörður

L-listi Byggðalistans hlaut 33,6% atkvæða og þrjá fulltrúa. Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 30,7% og þrjá fulltrúa. Framsókn nær inn tveimur fulltrúum með 22,9% og Miðflokkurinn fær einn fulltrúa með 12,8%. Þar með bæta bæði Byggðalistinn og Sjálfstæðisflokkur við sig einum fulltrúa og Miðflokkurinn kemur nýr inn. Meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks heldur því velli.

Þingeyjarsveit

Á-listi Ábyrgðar hlaut fjóra sveitarstjórnarfulltrúa með 49,12% atkvæða. L-listi Framfara hlaut 29,22% atkvæða og tvo fulltrúa og N-listinn fékk 21,66% og einn fulltrúa. Enginn þessara lista bauð fram í síðustu sveitarstjórnarkosningum þar sem E-listinn fékk hreinan meirihluta. Listinn klofnaði svo árið 2024 og tveir fulltrúar hans mynduðu þá meirihluta með K-listanum.

Borgarbyggð

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps og nær inn þriðja fulltrúanum með 29,3%. Framsókn nær aðeins inn tveimur fulltrúum með 25,4% og missir þar með þrjá fulltrúa og Miðflokkurinn kemur nýr inn með 21,9% og tvo fulltrúa ásamt Borgarbyggðarlistanum sem hlaut 23,5 prósent og tvo fulltrúa. Framsókn heldur því ekki hreinum meirihluta sem flokkurinn hlaut í Borgarbyggð í kosningunum árið 2022.

Vesturbyggð

N-listi Nýrrar sýnar hélt meirihluta sínum í Vesturbyggð og náði inn fjórum fulltrúum með 58,9% atkvæða. V-listi Sterkari Vesturbyggðar hlaut þrjá fulltrúa með 41,1% atkvæða.

Bláskógabyggð

T-listi fær fimm fulltrúa með 68,5% atkvæða og Þ-listi fær tvo fulltrúa með 31,5% atkvæða. Þetta eru sambærilegar niðurstöður og í síðustu kosningum.

Norðurþing

Sjálfstæðisflokkurinn heldur báðum sínum fulltrúum í Norðurþing með 20,3% atkvæða á meðan Samfylkingin bætir við sig fulltrúa, fær nú tvo kjörna fulltrúa, með 18,6%. Framsókn missir einn fulltrúa sinn, fer úr þremur í tvo,  með 18,1% atkvæða og það sama á við um Vinstri græna sem fara úr tveimur fulltrúum í einn með 13,7% atkvæða. Miðflokkurinn heldur sínum fulltrúa með 15,3% og Óskalistinn kemur nýr inn með einn fulltrúa og 13,9% atkvæða. Fimm manna meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks er því fallinn.

Fjallabyggð

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig þriðja fulltrúanum með 35,6% atkvæða og H-listi fyrir heildina heldur sínum tveimur fulltrúum með 33,3% atkvæða. Jafnaðarmannafélag Fjallabyggðar hlýtur tvo fulltrúa og 31,2% atkvæða. Meirihluti Jafnaðarmannafélags Fjallabyggðar og Sjálfstæðisflokks heldur því velli.

Fjarðarbyggð

Sjálfstæðisflokkurinn fer úr fjórum fulltrúum í þrjá í Fjarðarbyggð með 29% atkvæða. Samfylkingin fær tvo kjörna fulltrúa með 27,4% atkvæða og það sama gildir um Miðflokkinn sem hlaut 24% atkvæða. Framsókn missir einn mann, fer úr þremur fulltrúum í tvo,  með 19,6%. Dregið hefur úr styrk meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar en hann heldur þó velli.

Múlaþing

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fjórða fulltrúanum í Múlabyggð með 30,3% atkvæða og Framsókn heldur sínum þremur með 24,2%. Vinstri grænir halda sínum tveimur með 19,5% atkvæða og Miðflokkurinn heldur sínum eina fulltrúa með 14,8%. L-Austurlistinn tapar sínum fulltrúa með 11,2%. Meirihuti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar heldur því velli.

Hornarfjörður

Framsókn bætir við sig þriðja fulltrúanum í Hornarfirði með 44,8% en Sjálfstæðisflokkurinn fer úr þremur fulltrúum í tvo með 26%. Miðflokkurinn heldur sínum eina fulltrúa með 15,8% en Kex-framboð tapar sínum fulltrúa með 13,5%,  Meirihluti Kex-framboðs og Sjálfstæðisflokks er því fallinn.

Rangárþing eystra

D-listinn og aðrir lýðræðissinnar fékk hreinan meirihluta, 55,1%, og bætir við sig fjórða fulltrúanum á kostnað þriðja fulltrúa Framsóknar og annarra framfarasinna sem hlaut 28,1% og tvo fulltrúa. N-listinn heldur sínum eina fulltrúa með 16,7% . Meirihluti N-listans og D-listans heldur því tæknilega velli en ljóst er að D-listinn getur setið einn í meirihluta.

Rangárþing ytra

Engar breytingar eiga sér stað í Rangárþingi ytra en þar heldur Á-listinn sínum fjórum fulltrúum og hreinum meirihluta með 51,3% atkvæða. Sjálfstæðisflokkurinn heldur sínum þremur með 48,7%.

Fréttin hefur ítrekað verið uppfærð eftir því sem tölur hafa borist

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt