fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
Fréttir

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 17. maí 2026 00:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins var kátur á kosningavöku í kvöld og spáir flokki sínum stórsigri. Það sé hægri sveifla í gangi enda hafi vinstriflokkar verið við völd lengi í borginni með skelfilegum afleiðingum fyrir íbúa. Landsmenn hafi séð hvað gerist þegar vinstriflokkar fá að vaða fram með skatta- og gjaldhækkunum og hafi á sama tíma séð hvernig sveitarfélögum vegnar undir styrkri stjórn Sjálfstæðismanna.

Guðlaugur segir í samtali við RÚV að verði Hildur Björnsdóttir ekki borgarstjóri þá sé það óásættanlegt.

„Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu í Reykjavík og ef Hildur verður ekki borgarstjóri er það vegna þess að aðrir flokkar hafa ákveðið það að halda þeim flokki sem verður með mesta fylgið fyrir utan og það er óásættanlegt og ég trúi ekki að það muni gerast. Það liggur fyrir að það þarf að taka til hendinni í Reykjavík og það liggur alveg fyrir að það mun ekki gerast nema undir forystu Sjálfstæðismanna.“

Fyrstu tölur eru ekki komnar frá Reykjavík en þær eru væntanlegar eftir um það bil hálftíma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt