fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fréttir

Keyrði á móti rauðu ljósi á Suðurlandsbraut með hryllilegum afleiðingum – Bilaður ljósastaur ekki lagfærður strax eftir slysið

Ritstjórn DV
Mánudaginn 11. maí 2026 19:00

Konan var á leið yfir þessa gönguleið á Suðurlandsbraut þegar ekið var á hana, Mynd: Skjáskot/Já.is.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meginorsök banaslyss sem varð í desember á síðasta ári, þegar ekið var á aldraða konu sem var á gangi yfir Suðurlandsbraut, var að ökumaðurinn ók á móti rauðu ljósi. Það hafði einnig sitt að segja að ökumaðurinn viðurkenndi að hann hefði ekki verið með fulla athygli við aksturinn. Sagðist hann ekki hafa séð umferðarljósin við gönguleiðina sem konan var að ganga yfir og heldur ekki hana sjálfa. Einnig var lampi í ljósastaur við gönguleiðina bilaður sem varð til þess að lýsing við leiðina var um fjórðungur af því sem hún átti að vera. Greint er frá því í skýrslunni að þremur mánuðum eftir slysið hafi lampinn ennþá verið bilaður.

Þetta er niðurstaða skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa um slysið.

Hin látna var á níræðisaldri.

Slysið varð klukkan 9:51 að morgni. Konan var að ganga þvert yfir Suðurlandsbraut, á ljósastýrðri gönguleið, skammt austan Kringlumýrarbrautar. Á sama tíma var Kia Sportage fólksbifreið ekið vestur Suðurlandsbraut. Ökumaðurinn var einn í bifreiðinn þegar hann ók á konuna á vinstri akrein Suðurlandsbrautar. Konan slasaðist alvarlega og lést tveimur dögum síðar af völdum fjöláverka. Þegar hún gekk yfir Suðurlandsbraut var grænt gangbrautarljós á gönguleiðinni og rautt ljós fyrir akandi umferð.

Hiti var 5 gráður og hægviðri.

Þegar grænt ljós kviknaði fyrir konuna gekk hún af stað áleiðis til suðurs yfir akbraut með umferð til vesturs. Á sama tíma var Kia Sportage fólksbifreiðinni, ekið á móti rauðu umferðarljósi, vestur Suðurlandsbraut á vinstri akrein og á konuna. Engin hemlaför voru eftir bifreiðina á akbrautinni.

Athygli

Að sögn ökumanns bifreiðarinnar veitti hann því ekki athygli að framundan var umferðarljósastýrð gönguleið og hafði ekki séð konuna. Myrkur hafi verið úti og
hann verið með hugann við nálægan áfangastað. Hann sagðist ekki hafa áttað sig á því á hvaða hraða hann ók bifreiðinni þegar slysið varð og að hann hafi ekki notað hemlana fyrr en eftir slysið.

Við rannsókn slyssins var ökuhraði Kia bifreiðarinnar áætlaður út frá rannsókn á myndbandi þriðja aðila af slysinu þar sem hann reiknaðist 53,5 kílómetrar á klukkustund, 3,5 kílómetrum yfir hámarkshraða.

Niðurstaða skýrslunnar er að meginorsök slyssins sé sú að Kia bifreiðinni var ekið gegn rauðu umferðarljósi við gangbraut. Samkvæmt myndbandi hafi verið rautt umferðarljós fyrir umferð um Suðurlandsbraut til vesturs þegar bifreiðinni var ekið á konuna. Aðrar orsakir hafi verið þær að ökumaðurinn hafi, að eigin sögn, hvorki veitt
umferðarljósunum athygli né séð konuna áður en slysið varð. Bifreiðinni hafi verið ekið of hratt og lýsingu á slysstað verið ábótavant.

Um lýsinguna segir enn fremur í skýrslunni að lampi í ljósastaur við gönguleiðina hafi verið bilaður og gönguleiðarlýsingin beint yfir slysstað verið um fjórðungur af því sem Reykjavíkurborg setji sem viðmið á lýsingu við umferðarljósastýrðar gönguleiðir. Þá hafi það einnig verið niðurstaða lýsingaútreikninga að mæla með auknu ljósmagni við þessa gönguleið þannig að hönnun ljósmagns sé í samræmi við stefnu borgarinnar.

Í skýrslunni kemur fram að þegar ljósmæling var gerð á slysstaðnum 16. mars síðastliðinn hafi ekki ennþá verið búið að lagfæra lýsinguna en slysið varð 8. desember 2025. Hvort ljósastaurinn er ennþá bilaður er DV ekki kunnugt um.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lofar Kristrúnu en getur ekki kosið Samfylkinguna í Reykjavík – „Stefna hans eyðilagt allt sem ég vildi að gert væri“

Lofar Kristrúnu en getur ekki kosið Samfylkinguna í Reykjavík – „Stefna hans eyðilagt allt sem ég vildi að gert væri“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vilja byggja Fossvogsbrú á nóttunni – Lýst yfir áhyggjum af áhrifunum á heilsu íbúa

Vilja byggja Fossvogsbrú á nóttunni – Lýst yfir áhyggjum af áhrifunum á heilsu íbúa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sandra stígur fram: „Ég hef líka séð afleiðingarnar þegar samfélagið bregst“

Sandra stígur fram: „Ég hef líka séð afleiðingarnar þegar samfélagið bregst“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sigríður Á. segir Hönnu Katrínu fara með ósannindi um stuðningsmenn ÍBV og Miðflokkinn – „Sker sig úr frá öllum forverum sínum“

Sigríður Á. segir Hönnu Katrínu fara með ósannindi um stuðningsmenn ÍBV og Miðflokkinn – „Sker sig úr frá öllum forverum sínum“