fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Sverrir Helgason flutti ræðu hjá Miðflokksmönnum – Hefur kallað regnbogafánann „alnæmisfánann“

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 10. maí 2026 16:30

Hinn umdeildi Sverrir Helgason flutti ræðu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sverrir Helgason, sem sagði sig úr stjórn ungliðahreyfingar Miðflokksins í kjölfar umfjöllunar um rasísk ummæli hans í október síðastliðnum, er snúinn aftur og hélt ræðu á fundi ungra Miðflokksmanna.

Vísir greindi fyrst frá.

Mál Sverris voru mikið til umfjöllunar síðastliðið vor. En hann hefur látið hafa eftir sér að genamengi skipti máli við uppbyggingu samfélaga og sagði það ekki trufla hann að vera kallaður rasisti. „Það myndi ekki trufla mig þó ég væri kallaður það… Ekki neitt,“ var haft eftir Sverri í hlaðvarpinu Bjórkastinu. Sjálfur hefur Sverrir lýst sér sem „race-realist“.

„Alnæmisfáni“ og „aktivista hórur“

Sverrir hefur einnig talað fyrir stórtækum brottflutningi fólks frá Miðausturlöndum og þá hefur hann kallað regnbogafánann „alnæmisfánann.“

Einnig hefur Sverrir látið miður falleg ummæli um femínista falla. „Þetta eru allt aktívista hórur,“ er á meðal ummæla sem hafa verið höfð eftir honum.

Sjá einnig:

Miðflokkurinn í Kópavogi vill láta fjarlægja regnbogafána við alla skóla í bænum

Samkvæmt frétt Vísis fjallaði Sverrir meðal annars um málefni hinsegin fólks í ræðunni og mikilvægi þess að Miðflokkurinn „gæfi ekkert eftir“ í þeim efnum. Sagði hann að landið væri „fokkt“ ef Miðflokkurinn næði ekki áhrifum.

En meðal þeirra sem hafa beitt sér gegn regnbogafánanum að undanförnu eru Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, og Einar Jóhannes Guðnason, oddviti flokksins í Kópavogi.

Anton Sveinn þegir nú

Fögnuðu ungir Miðflokksmenn vel og lengi eftir ræðu Sverris að sögn Vísis. Hins vegar vildi hvorki Sverrir né Anton Sveinn McKee, formaður ungliðahreyfingarinnar, tjá sig um málið.

Anton hefur áður sagt, í viðtali í nóvember síðastliðnum, að Sverrir tali ekki fyrir unga Miðflokksmenn.

„Sverrir vill náttúrulega bara breyta samfélagsumræðunni á Íslandi og ég ætla ekki að fara inn í einhver sérstök orð sem hann lét falla og orðin hans eru bara á hans eigin ábyrgð. Hver og einn maður ber ábyrgð á sínum orðum,“ sagði Anton í hlaðvarpsþættinum Sláin inn. „Auðvitað tökum við öllum sem vilja byggja upp sterka ungliðahreyfingu en það náttúrulega fylgir allt öðruvísi ábyrgð þegar þú ferð inn í stjórnina. Og það auðvitað sýnir sig í því að maður getur ekki bara tjáð sig á hvaða máta sem er og það var náttúrulega einmitt enda niðurstaðan að hann myndi fara út.“

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar