fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Niðurstöður kosningaprófs Viðskiptaráðs – Þetta eru málin sem njóta mests stuðnings

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 11. maí 2026 06:00

Myndin er úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hógvær hækkun gjalda, aukin áhersla á grunnfög, tryggt aðgengi að bílastæðum og samræmt námsmat við lok grunnskólagöngu eru þau mál sem njóta mests stuðnings þátttakenda í kosningaprófi Viðskiptaráðs fyrir sveitastjórnarkosningar sem fram fara 16. maí. Yfir 7.000 manns hafa nú tekið kosningaprófið, þar sem afstaða er könnuð til 30 fjölbreyttra málefna. 

Tíu vinsælustu málin

Flestir eru fylgjandi því að borgin hækki ekki gjaldskrár umfram verðbólgumarkmið og fasteignagjöld umfram verðlagsþróun. Sé miðað við kosningaáttavita Viðskiptaráðs, þar sem framboð í borginni voru spurð um afstöðu þeirra til sömu mála, eru öll framboð nema eitt fylgjandi hógværum hækkunum.

Þegar kemur að menntamálum eru flestir fylgjandi því að auka áherslu á grunnfög í grunnskóla, líkt og lestur, stærðfræði og íslensku. Einnig voru flestir fylgjandi endurupptöku einkunna í tölustöfum auk innleiðingar samræmda prófa við lok grunnskólagöngu.

Fækkun borgarfulltrúa úr 23 í 15 naut vinsælda auk þess að afnema ætti 70% laun fyrstu varaborgarfulltrúa allra flokka.

Umferðargjöld óvinsælust

Önnur mál nutu hins vegar dræmari stuðnings meðal þátttakenda. Þar sker sig sérstaklega úr spurning um upptöku umferðargjalda á háannatímum, en 67% voru andvíg því á meðan 18% voru fylgjandi. Sala á hlut í Orkuveitu Reykjavíkur var einnig óvinsæl en um 59% þátttakenda lýstu sig andvíga sölunni.

Stuðningur við meirihluta mála

Heilt yfir sýna niðurstöður kosningaprófsins að meirihluti þátttakenda er fylgjandi tugum góðra mála sem eru til þess fallin að auka hagsæld í borginni. Vert er að taka fram að svör þátttakenda í kosningaprófinu þurfa ekki að endurspegla afstöðu allra kjósenda, einnig er ekki hægt að ganga úr skugga um að aðeins íbúar Reykjavíkurborgar hafi svarað könnuninni. Engu að síður gefa niðurstöðurnar vísbendingu um afstöðu kjósenda til þessara mála.

Niðurstöður kosningaprófsins í heild sinni eru nú öllum aðgengilegar á vef Viðskiptaráðs.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar