

Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi segir frétt Morgunblaðins um tölvupóstsamskipti meðal annars milli hennar og Einars Þorsteinssonar þáverandi borgarstjóra sýna að hún hafi reynt af öllum mætti að koma í veg fyrir að hin umdeildu byggingu í Breiðholti sem yfirleitt er kölluð Græna gímaldið risi með þeim hætti sem raunin varð. Hún hafi hins vegar takmarkaða möguleika haft til að knýja fram breytingar á byggingunni sem hafi verið reist í samræmi við deiliskipulag sem samþykkt hafi verið að henni fjarstaddri. Henni hafi hins vegar að ósekju verið kennt um að svona hafi farið.
Græna gímaldið er stórhýsi sem á meðal annars að hýsa kjötvinnslu en það er aðeins örfáa metra frá fjölbýlishúsi sem vakið hefur mikla óánægju meðal íbúa. Þegar fjölmiðlar greindu frá málinu virtust borgarstjórinn þáverandi, Einar Þorsteinsson og borgarfulltrúar meirihlutans koma af fjöllum. Í frétt Morgunblaðsins segir hins vegar að tölvupóstsamskipti, sem það hefur undir höndum, milli kjörinna fulltrúa í Reykjavík, embættismanna og forsvarsmanna Eignabyggðar ehf., framkvæmdaaðila við Græna Gímaldið, þar sem fram komi að meirihlutinn í Reykjavík hafi gert sér grein fyrir umfangi byggingarinnar áður en hún reis, þrátt fyrir yfirlýsingar um að það kæmi þeim í opna skjöldu þegar húsið var risið.
Dóra Björt segist ánægð með að blaðið hafi komist yfir þessi samskipti sem sanni hennar mál:
„Ég er ánægð með að þessir tölvupóstar hafi komið fram, því þeir staðfesta það sem ég hef sagt frá upphafi: Ég hef aldrei verið hlynnt græna gímaldinu. Þótt deiliskipulagið hefði verið samþykkt í minni fjarveru og möguleikar mínir takmarkaðir, gerði ég allt sem í mínu valdi stóð til að koma í veg fyrir að það risi með þessum hætti, því Breiðholt á betra skilið.Þegar ég sá þessar teikningar vissi ég ekki einu sinni hversu nálægt byggingin væri íbúabyggð, enda kom það ekki skýrt fram í þeim gögnum sem ég hafði undir höndum. Samt fann ég strax að hér væri eitthvað sem kallaði á meiri metnað, meiri gæði og meiri tillitssemi við hverfið.“
Hún segir að hendur sínar hafi að verulegu leyti verið bundnar af deiliskipulagi sem var samþykkt í hennar fjarveru á meðan húnvar í fæðingarorlofi. Allt of fáir skilmálar hafi legið fyrir, en hún hafi gert það sem hún gat til að knýja fram betri lausn fyrir svæðið:
„Á þessum tímapunkti hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið og bæði skipulagsfulltrúi og byggingarfulltrúi bentu mér á að ég væri komin út fyrir það sem venjulega telst hlutverk formanns. Samt beitti ég mér af alefli, því mér þykir vænt um Breiðholtið og vildi ekki gefast upp.“
Dóra Björt var formaður umhverfis- og skipulagsráðs þegar umræðan um Græna gímaldið stóð sem hæst. Hún segir að henni hafi verið kennt um það af því hún ekki farið í felur undan gagnrýninni. Hún beri hins vegar ekki ábyrgð á deiliskipulaginu sem heimilaði bygginguna í þessari mynd og því hafi verið sárt að upplifa að umræðan hafi beinst gegn henni. Hún hafi reynt að fá uppbyggingaraðilann til að gera breytingar til að koma til móts við óánægju íbúa en deiliskipulagið hafi hamlað því.
Telur Dóra Björt að ef hún hefði fengið að ráða meiru áður en málið kom upp hefði verið hægt að koma í veg fyrir að svona hafi farið:
„Einmitt vegna mikils áhuga og metnaðar fyrir auknum gæðum í uppbyggingu kom ég hugmyndinni um borgarhönnunarstefnu inn í pólitíkina löngu áður en þetta mál kom upp, hélt henni á lofti þegar undirtektir voru litlar og leiddi vinnuna í höfn sem formaður stýrihópsins. Hefði ég fengið að fara af stað með þá vinnu á síðasta kjörtímabili eins og ég vildi, áður en ég var orðin formaður ráðsins, hefði það getað komið í veg fyrir þetta leiðindamál. Undir minni forystu voru jafnframt gerðar miklar breytingar á ferlum og stjórnskipulagi skipulags- og uppbyggingarmála með það að markmiði að straumlínulaga vinnuna og skapa skýrari ábyrgðarkeðjur sem tryggja betur gæði í uppbyggingu borgarinnar. Ef þessari vinnu verður fylgt eftir af alvöru getum við stoppað í götin í kerfinu og dregið verulega úr líkunum á því að sambærileg mistök endurtaki sig. Það er því mín einlæga ósk að ný borgarstjórn fylgi þessum mikilvægu verkefnum fast eftir núna eftir að ég kveð sviðið.“