fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fréttir

Guðmundur Elís dæmdur fyrir óeðlileg samskipti við 15 ára stúlku

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 11. maí 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Elís Briem Sigurvinsson var í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 7. maí sakfelldur fyrir sifskapar- og barnaverndarlagabrot með því að hafa frá laugardagskvöldinu 1. apríl 2023 og fram á miðjan sunnudaginn 2. apríl stuðlað að því að 15 ára stúlku koma sér undan umsjá foreldra sinna.

Guðmundur Elís og stúlkan mæltu sér mót við Landeyjarhöfn á laugardagskvöldið og ók hann síðan með hana síðar um kvöldið til Keflavíkur og fór þar í leyfisleysi með hana um borð í skipið Grímsnes GK-555, þar sem siglt var út á sjó um nóttina og dvaldist stúlkan um borð í skipinu þar til því var snúið við og lagt við höfn í Njarðvík, síðdegis á sunnudeginum.

Guðmundur Elís var sjómaður á umræddu skipi. Fyrir dómi játaði hann verknaðinn sem lýst er í ákæru en neitaði sök, sagðist hann hafa framkvæmt í gáleysi en ekki hafi vakað fyrir honum að fremja lögbrot. Hann hafi gripið til þessara ráðs í kjölfar þess að stúlkan missti af ferð með Herjólfi til Vestmannaeyja þar sem ferðin var felld niður.

Fram kom fyrir dómi að móðir stúlkunnar hafði áður sett sig í samband við Guðmund Elís og lýst því yfir að hún væri mjög mótfallin því að þau ættu í samskiptum. Í framburði stúlkunnar sjálfrar fyrir dómi kom jafnframt fram að Guðmundi Elís hafi verið kunnugt um að foreldrar hennar væru ósátt við kynni þeirra og að hann hafi orðið hræddur þegar þau hringdu í hana er hún var stödd í bíl með honum. Hann hafi því ekki haft neina ástæðu til að ætlar að að þetta ferðalag með stúlkunni væri með heimild foreldranna.

Þess skal getið að Guðmundur Elís var 23 ára gamall þegar þessi samskipti hans við 15 ára stúlku áttu sér stað.

Var það niðurstaða dómsins að Guðmundur Elís hefði með þessu framferði sínu gerst sekur um sifskapar- og barnaverndarlagabrot. Það var virt honum til refsimildunar að málið hefur dregist hjá lögreglu og ákæruvaldi. Var niðurstaðan fjögurra mánaða fangelsi.
Dóminn má lesa hér.

Dæmdur fyrir hrottalegt ofbeldi

Guðmundur Elís á brotaferli að baki og hefur verið dæmdur fyrir hrottalegt ofbeldi í nánu sambandi. Í september 2020 var viðtal í Kastljósi við Kamillu Ívarsdóttur, fyrrum kærustu Guðmundar Elís, þar sem hún sagði frá grófu ofbeldi sem hún varð fyrir af hálfu hans. Með henni í viðtalinu var móðir hennar Helga Sæunn Árnadóttir, sem sagði sögu sína í forsíðuviðtali Vikunnar í byrjun árs 2021.

Í dómi sem Guðmundur Elís hlaut í mars 2020 eru fjögur ofbeldisbrot hans tiltekin gegn Kamillu sem og annarri fyrrverandi kærustu sem jafnframt er barnsmóðir Guðmundar, og var hann sakfelldur fyrir þau öll.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt