fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Fréttir

Snorri segir að íslenska skólakerfið hafi ekki verið hannað til að taka á móti öllum þessum erlendu börnum

Ritstjórn DV
Föstudaginn 8. maí 2026 12:00

Snorri Másson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Snorri Másson, þingmaður og varaformaður Miðflokksins, lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu íslenskunnar vegna innflytjendastefnu stjórnvalda. Hann segir erlenda nemendur ekki ná nógu góðum tökum á íslensku og að skólakerfið hafi ekki verið hannað fyrir móttöku svo margra erlendra barna eins og raun ber vitni.

Þetta kemur fram í pistli á Facebook-síðu þingmannsins þar sem segir:

„Ein af draumsýnum fjölmenningarstefnunnar er að til okkar fámenna lands geti komið ótakmarkaður fjöldi nýrra íbúa og bara með eilitlu átaki tileinkað sér íslensku á nokkrum árum. Að ef við aðeins temjum okkur rétta viðmótið og bjóðum upp á nógu mörg námskeið, geti íslenska áfram verið sterk og óskoruð þjóðtunga allra landsmanna.

Þeir sem kynna sér málið hins vegar vel komast fljótt að þeirri niðurstöðu að slíkur árangur við íslenskukennslu útlendinga hefur reynst fullkomlega óraunhæfur. Engin merki eru heldur um að ástandið muni batna með tímanum, nú þegar hvatinn til þess að læra tungumálið fer minnkandi með hverju árinu af óbreyttri innflytjendastefnu.

Það er á brattann að sækja með fullorðna en margir hugga sig þó við að börnin – önnur kynslóð innflytjenda – hljóti nú að tileinka sér íslensku á leið sinni í gegnum skólakerfið. Þessar vonir eru því miður að bregðast og erlend börn alls ekki að ná þeim tökum á tungumálinu sem skyldi. Þetta gengur mun verr en í löndunum sem við berum okkur saman við.“

195% fjölgun

Snorri bendir á að á undanförnum 15 árum, eða svo, hafi grunnskólanemendum með erlent ríkisfang fjölgað um tæp 200 prósent. Skólakerfið hafi ekki verið hannað fyrir allan þennan fjölda erlendra nemenda:

„Uppbygging íslenska skólakerfisins gerir ráð fyrir því sem undantekningu að hingað flytji útlendingar og börn þeirra setjist á skólabekk. Kerfið var hins vegar engan veginn hannað til að taka á móti fordæmalausum fjölda innflytjenda til margra ára eða áratuga. Frá 2010 til 2024 fjölgaði leik- og grunnskólanemum með erlent ríkisfang á Íslandi um 195% og margir skólar eiga í vök að verjast vegna þess álags sem hlotist hefur af þessari þróun á síðustu árum, svo að vægt sé til orða tekið. Árangur allra í kerfinu er að versna.“

Snorri segir að taka þurfi upp ábyrgari innflytjendastefnu til að vinna gegn þessum vanda og koma þurfi í veg fyrir að sjö ára börn komi beint inn í almennan bekk í íslenskum skóla án þess að kunna tungumálið:

„Á málþingi í vikunni var ég spurður hvernig bæta mætti aðstæður erlendra barna í skólakerfinu og ég svaraði því til að það séu ríkir hagsmunir bæði íslenskra og erlendra barna í skólakerfinu að taka þegar í stað upp ábyrgari innflytjendastefnu. Það er stærsta forgangsmálið og öllum í hag. Fyrir íslensku börnin dregur það úr álagi á kerfið og fyrir erlendu börnin sem hingað eru komin eykur það líkurnar á vel heppnaðri aðlögun að samfélaginu.

Þar fyrir utan þarf að takast á við núverandi aðstæður af festu. Endurskipuleggja þarf frá grunni móttöku barna af erlendum uppruna, þannig að sjö ára barn komi til dæmis ekki beint frá útlöndum og inn í bekk þar sem það á að læra um aðskiljanlegustu mál á íslensku án þess að kunna hana. Skólakerfið verður að hafa raunhæfa valkosti til að mæta þörfum ólíkra hópa. Hér þarf að fjölga sérstökum íslenskuverum, bjóða upp á móttökuskóla, -deildir og -bekki og tryggja að íslenskukennsla hafi borið skýran árangur áður en börnin halda áfram inn í almenna bekki.“

Pistilinn í heild má lesa með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Pawel bendir á hræsni Einars – „Miðflokkurinn er mjög hissa að fjölmiðlar vilji ræða þetta stefnumál þeirra“

Pawel bendir á hræsni Einars – „Miðflokkurinn er mjög hissa að fjölmiðlar vilji ræða þetta stefnumál þeirra“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Efnaleki í Hafnarfirði

Efnaleki í Hafnarfirði
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Eineltishrottar verða hýddir í skólanum

Eineltishrottar verða hýddir í skólanum
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Margrét segir Reykjavík minna á Svíþjóð hvað varðar tafir og skriffinnsku – „Umfram allt hef ég þurft að bíða“

Margrét segir Reykjavík minna á Svíþjóð hvað varðar tafir og skriffinnsku – „Umfram allt hef ég þurft að bíða“
Fréttir
Í gær

Heimir Már segir hægri menn býsnast yfir innflytjendum – „Staðið undir öllum hagvexti Íslands undanfarin 10-15 ár“

Heimir Már segir hægri menn býsnast yfir innflytjendum – „Staðið undir öllum hagvexti Íslands undanfarin 10-15 ár“
Fréttir
Í gær

Árni Logi meindýraeyðir ákærður fyrir minkaveiðar – „Þetta er hýenubæli þarna í Þórunnarstræti“

Árni Logi meindýraeyðir ákærður fyrir minkaveiðar – „Þetta er hýenubæli þarna í Þórunnarstræti“