fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fréttir

Arkitekt hjá borginni segist nokkrum sinnum hafa verið milli steins og sleggju: „Erfitt fyrir mig að segja „Já en þetta eru ekki góðar íbúðir“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 11. maí 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Græna gímaldið svokallaða, verslunar- og skrifstofuhús við Álfabakka 2a í Breiðholti, hefur vakið mikla athygli. Flestum brá í brún þegar húsið var risið endar afar stórt og afgerandi hús í götunni sem nágrannar og fleiri eru alls ekki sáttir um.

Óþarfi er að rekja sögu hússins í heild sinni hér, en 20. maí í fyrra birti DV frétt um afgreiðslufund skipulagsfulltrúa þar sem málefni Græna gímaldsins var tekið fyrir.

Sjá einnig: Umsögn skipulagsfulltrúa um „Græna gímaldið“ ansi afgerandi – „Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið á Íslandi“

Undir umsögnina ritar fyrir hönd skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, Borghildur Sölvey Sturludóttir arkitekt, sem er deildastjóri deiliskipulagsáætlana. Niðurstaða fundargerðarinnar er botnuð með tveimur málsgreinum sem verða að teljast lýsa ansi persónulegri og afgerandi skoðun Borghildar á byggingunni:

„Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið á Íslandi – löggjöfin spyr hvorki um fagurfræði né samhengi. Það er því sorgleg staðreynd að þeir sem fara með völd, fjármagn og fyrirferðamikinn rekstur skuli ekki sýna frekari metnað í uppbyggingu á miðsvæðum höfuðborgarsvæðisins.

Fagurfræði er ekki smekkur – fagurfræði er samhengi – og þessa byggingu skortir slíkt.“

Umsögnin var síðar tekin út af vef Reykjavíkurborgar og birt aftur, í endurbirtingunni var búið að fjarlægja þessi ummæli Borghildar, auk þess að fjarlægja nafn hennar af umsögninni. Nú stendur aðeins neðst í umsögninni; Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur.

Í viðtali við Gímaldið ræðir Borghildur um Græna gímaldið, umsögnina og það hvernig farið er með byggingarheimildir eins og óveiddan kvóta.

„Við vorum allt of oft af veikum mætti að gera hlutina eins vel og við getum og gátum, vel vitandi að þarna var búið að gefa út heimildir á magn sem erfitt var að tryggja að mínu mati lágmarksgæði.“

Borghildur segir hraða breytingu í umhverfi skipulagsmála.

„Það eru komnir inn í raun og veru nýir leikendur, sem eru fjárfestar og þróunaraðilar, sem eru ekki aðilarnir sem eru endilega að fara að byggja heldur í raun og veru bara þeir sem eru að vinna með svokallaðar heimildir í deiliskipulagi. Þeir eru milliliðir. Við höfum verið að vinna með þetta sem svona óveiddan kvóta.

Borghildur segir aðalskipulag Reykjavíkur og svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins sem unnið er með til að þétta byggð frábært. Hún segir þéttingu ekki vera vont orð.

„Það er bara ávísun á að við erum að gera betri borg og betri svæði fyrir fólk vegna þess að við verðum einhvern veginn að nýta þetta betur til þess að við séum ekki endalaust að eyða meiri tíma í það að ferðast á milli A og B. Og við séum í alvöru að búa til val varðandi samgöngumátann. Ég ætla að segja það hér að það hefur verið farið of geyst á ákveðnum reitum með ákveðna nýtingu sem er of mikil og hefur síðan búið til ákveðin snjóboltaáhrif.“

Borghildur segir verið að reyna að búa til hvata til að passa að blandað sé saman og stuðlað sé að leiguhúsnæði og félagslegu húsnæði.

„Þannig á gott borgarumhverfi að virka, og þetta er ekki hægri vinstri pólitík. Þetta er bara í alvöru, þær borgir sem við viljum bera okkur við eru allan daginn að vinna með.
Við höfum gefið svolítið í með byggingamagnið á sama tíma og byggingareglugerðin dró úr kröfum. Þetta tvennt gerði það að verkum að ég stóð nokkrum sinnum frammi fyrir því að vera með verkefni þar sem mér fannst, þetta var allt samkvæmt lögum og reglugerðarbókstöfum, en þetta yrðu ekki góðar íbúðir. En ég gat lítið sagt vegna þess að það var búið að selja reiti með ákveðnu magni af íbúðum, með ákveðnu byggingamagni, með ákveðnum fjölda bílastæða og öðru slíku. Og þá var erfitt fyrir mig að segja: „Já en þetta eru ekki góðar íbúðir. Já en þetta er samkvæmt reglugerð og skilmálum.““

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dorrit harðlega gagnrýnd fyrir að nudda sér upp við hægri öfgamanninn Farage – „Ótrúlega ógeðfelldur maður“

Dorrit harðlega gagnrýnd fyrir að nudda sér upp við hægri öfgamanninn Farage – „Ótrúlega ógeðfelldur maður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu

Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pinnahælar reyndust leigjendum dýrkeyptir

Pinnahælar reyndust leigjendum dýrkeyptir