fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Góð viðbrögð við nýjum styrktarsjóði Terra

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 11. maí 2026 08:21

Erna Björk Häsler, markaðsstjóri Terra.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir skömmu setti Terra af stað nýjan styrktarsjóð sem ætlaður er einstaklingum og sprotafyrirtækjum með verkefni sem tengjast umhverfis- og nýsköpunarmálum. Markmið sjóðsins er að styðja við hugmyndarík verkefni sem geta haft jákvæð áhrif á samfélagið og stuðlað að aukinni sjálfbærni eins og segir í tilkynningu. 

„Það er einstaklega ánægjulegt að segja frá því að viðbrögðin hafa farið langt fram úr væntingum en nú þegar hafa yfir 40 umsóknir borist í sjóðinn. Fjölbreytileiki verkefnanna og sá metnaður sem umsækjendur sýna staðfestir að mikil gróska er í nýsköpun sem snýr að sjálfbærum lausnum og betri framtíð,“ segir Erna Björk Häsler, markaðsstjóri Terra.

„Við hjá Terra viljum styðja við aðila sem vinna að lausnum sem stuðla að sjálfbærni og betri framtíð fyrir okkur öll. Verkefni sem falla að styrktarstefnu Terra á sviði umhverfismála og nýsköpunar koma til greina og hlökkum við til að sjá enn fleiri spennandi umsóknir berast. Við viljum þakka öllum þeim sem hafa sent inn umsóknir og um leið viljum við hvetja þá sem eru með spennandi hugmyndir eða verkefni sem stuðla að sjálfbærni og jákvæðum breytingum í samfélaginu, til að senda inn umsókn,“ segir Erna ennfremur. Umsóknarfrestur er til 1. júní næstkomandi.

Erna Björk Häsler, markaðsstjóri Terra.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar