fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fókus

Lögreglan í Miami kærir stórleikarana fyrir meiðyrði vegna Netflix-myndar

Fókus
Mánudaginn 11. maí 2026 16:30

Affleck og Damon í hlutverkum sínum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan í Miami hefur kært leikarana Matt Damon og Ben Affleck vegna Netflix-myndar þeirra The Rip. Í spennumyndinni sem kom út í janúar eru Damon og Affleck í aðalhlutverkum sem lögreglumenn í fíkniefnadeild lögreglunnar í Miami-Dade. 

Myndin er sögð innblásin af sannri sögu fíkniefnaárásarinnar í Miami Lakes árið 2016, sem varð stærsta fjárupptaka í sögu Miami-Dade eftir að lögreglan lagði hald á meira en 24 milljónir dala í reiðufé.

Fjölmargir lögreglumenn sem komu að innárásinni árið 2016 hafa nú kært Affleck og Damon í gegnum framleiðslufyrirtæki þeirra, Artists Equity. Í kærunni er því haldið fram að myndin hafi skaðað mannorð lögreglumannanna sem komu að innárásinni árið 2016 á óréttmætan hátt með neikvæðri lýsingu á þeim.

Jonathan Santana, aðstoðarlögreglumaður hjá lögregluembættinu í Miami-Dade, sagði við fjölmiðla: „Þegar þú rífur eitthvað, þá ert þú að stela einhverju. Við stálum aldrei einum dollara.“

Hann sagði einnig að hann hefði orðið fyrir aðkasti eftir að myndin kom út, þar sem fólk sakaði hann um að stela. „Þú veist, hversu mörgum fötum af peningum stal ég?“ sagði hann.

Lögmaður Santana, Ignacio Alvarez, sagði einnig við miðla vestanhafs: „Þeir lýstu lögreglumönnum sem óheiðarlegum, þeir lýstu skjólstæðingum mínum sem óheiðarlegum. Nú er mannorð þeirra skaðað. Skjólstæðingar mínir hafa nú orðið fyrir skaða það sem eftir er ævinnar og allir eru á því að þeir séu óheiðarlegir.“.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem The Rip hefur vakið upp ólgu. Myndin var aðallega tekin upp í Hilaleah í Flórída og Bryan Calvo, borgarstjóri Hialeah, gagnrýndi myndina harðlega í janúar og hélt því fram að hún gæfi ranga mynd af borginni sem óöruggri.

„Þessi mynd er eins og löðrungur á lögreglumenn okkar,“ sagði hann. „Ef þú hefur aldrei komið til Hialeah, ef þú býrð annars staðar í þessu landi og sérð þessa mynd, þá myndi ég ekki vilja koma hingað, og það er vandamál. Sú raunverulega saga sem við sáum lýst í myndinni Rip átti sér stað í Miami Lakes.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 5 dögum

Erna Hrönn tók stjórnina á eigin lífi: „Ég var komin á þann stað að mig langaði ekki að vera til lengur“

Erna Hrönn tók stjórnina á eigin lífi: „Ég var komin á þann stað að mig langaði ekki að vera til lengur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hætti skyndilega þátttöku í The White Lotus – Ástæðan var þessi ágreiningur

Hætti skyndilega þátttöku í The White Lotus – Ástæðan var þessi ágreiningur