fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fréttir

Sævar Þór segir Baldur hæfastan á Bessastaði – „Hver er þá öryggisventillinn ef valið stendur um flekklausa fortíð frambjóðenda“

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 7. apríl 2024 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Umræðan um væntanleg forsetaefni er skrautleg á köflum og einkennist stundum af algjöru þekkingarleysi eða einfeldni. Við höfum haft hina ýmsu forseta frá stofnun lýðveldisins sem hafa í reynd verið ákveðinn þverskurður af samfélaginu. Við höfum haft forseta sem var armur íhaldsins og hinna atvinnuskapandi stétta. Þá höfðum við virðulegan bónda sem kenndi sig við bændur og sveitarfólk landsins, því næst forseta fræða og aðdáunar á fornfrægri söguöld, forseta jafnréttis og íslenskrar tungu, hinn óútreiknanlegi Epal kommi sem var algjört kamelljón og breytti ásýnd embættisins, og forseta með sokkafetisið sem var hálfgert nörd og hluti af þeirri kynslóð sem er laus við allar formfastar hefðir. En hver er þá næstur?“

spyr Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður í pistli á Vísi.

Segist Sævar Þór ekki ætla að fara ofan af þeirri skoðun sinni að Baldur Þórhallsson sé „besti kandídatinn í þetta embætti enda vel að sér í stöðu heims- og stjórnmála og sögu þeirra sem nýtast best þessu embætti. Bakland hans er sterkt og af þeim sem nú þegar hafa komið fram er hann besti þverskurður okkar nútíma samfélags,“ segir Sævar Þór. 

Sævar Þór að ekki verði litið fram hjá því að Baldur „endurspeglar breytt viðhorf til mannréttindamála sem meðal annars hefur leitt til þess að samkynhneigt par er orðið gjaldgengt í framboði til forseta lýðveldisins. Það er jafn merkilegt og þegar Vigdís Finnbogadóttir bauð sig fram fyrst kvenna. Þeir sem gera lítið úr þessu vaða í villu. 

Það yrði stór sigur fyrir réttindabaráttu allra minnihlutahópa ef Baldur Þórhallsson fengi brautargengi að verða forseti lýðveldisins, sá fyrsti í sögu þjóðarinnar. Allt tal um að ekki eigi að velja út frá kynhneigð eru duldir fordómar. Þetta var líka uppi á teningnum þegar Vigdís bauð sig fram, auðvitað var það hluti af hennar baráttu að vera kona líkt og það er hluti af baráttu Baldurs Þórhallssonar að vera hommi og giftur manni sem tekur virkan þátt í baráttunni.“

Sjá einnig: Baldur býður sig fram til forseta

Sævar Þór  segir að tugir einstaklinga hafa lýst sig reiðubúna til að gegna því mikilvæga verkefni að vera forseti lýðveldisins. Þegar þetta er skrifað, 7. apríl kl. 11.25 er fjöldi frambjóðenda á island.is 73, en eins og áður hefur komið fram í fréttum eru líklega ansi margir þeirra „óvart„ í framboði, hafa ætlað að mæla með frambjóðenda en boðið sig fram í staðinn.

„Það endurspeglar eflaust heilbrigt lýðræði hve margir eru boðnir og búnir í starfið þó sumum finnist það orðið skrípaleikur. Breytingar í samfélaginu hafa án efa mikið að segja því með tilkomu samfélagsmiðla sem vettvangs fyrir slíkar stjörnur og áhrifavalda þá geta allir orðið stjörnur, jafnvel þótt aðeins að eigin mati sé. Þegar þú ert er stórstjarna í eigin bergmálshelli þá er stutt stökk á Bessastaði. Þrátt fyrir gagnrýni á fyrirkomulag forsetakosninga þá er langt í að allir sem vilja nái lágmarks fjölda undirskrifta. Á heildina litið eru þetta örfáir sem ná markmiðinu að geta boðið sig fram þannig að þröskuldurinn er þó einhver þótt deila megi um hvort hann þyrfti að vera hærri.“

Segir Baldur hafa allt til brunns að bera

Sævar Þór segir að að öllu framangreindu slepptu þá hafi Baldur allt til brunns að bera til að verða framúrskarandi forseti. „Hann er klár og vel gefinn með ómælda innsýn inni í stjórnskipun landsins og hvernig hún virkar, hann þekkir vel utanríkismál þjóðarinnar og málefni líðandi stundar á alþjóðlegum vettvangi. Hann er búinn að vera í hringiðu pólitískrar umræðu hér á landi lengi og beinlínis starfar við að fylgjast með þeim málum og greina þau innan Háskóla Íslands. Hann hefur réttu þekkinguna og reynsluna.“

Baldur hefur verið gagnrýndur vegna afstöðu hans í Icesave-málinu, bendir Sævar Þór á að ef sú afstaða eigi að ráða vali á forseta í dag þá sé Katrín Jakobsdóttir einnig útilokuð.

„Þá kemur að hinum margt umtalaða öryggisventli, það er hvort Baldur Þórhallsson geti staðið í lappirnar og synjað lögum sem fara gegn vilja þjóðar. Ágætur kollegi minn hafði orð á því að afstaða Baldurs í Icesave-málinu sýndi að hann stæði ekki vörð um sjálfstæði þjóðarinnar. Þessi rök ættu þá að útiloka Katrínu Jakobsdóttur líka frá embætti því allir þingmenn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar kusu með Icesave-frumvarpinu á sínum tíma. Baldur var bara varaþingmaður á þessum tíma en Katrín var ekki bara óbreyttur þingmaður heldur einnig ráðherra og var því í afburðastöðu til þess að hafa áhrif á málið, til dæmis við ríkisstjórnarborðið. Það var líka hennar flokkur sem hafði fjármálaráðuneytið og forgöngu í málinu. Hver er þá öryggisventillinn ef valið stendur um flekklausa fortíð frambjóðenda í þessu samhengi af þeim sem hafa gefið kost á sér.“

Sjá einnig: Katrín býður sig fram til embættis forseta Íslands

Segir Baldur hafa þekkinguna og innsæið sem aðra frambjóðendur skorti

„Baldur Þórhallsson hefur í áratugi unnið við það að fylgjast með stjórnmálum og atburðum og greina aðstæður hverju sinni. Sem slíkur áhorfandi og greinandi býr hann yfir einstakri reynslu og innsæi til þess að lesa þær aðstæður þegar bil myndast milli þings og þjóðar. Hann, umfram alla aðra frambjóðendur, hefur þekkinguna og innsæið til að vita hvenær aðstæður eru með þeim hætti að forsetinn ætti að leggjast undir feld og huga að vilja þjóðarinnar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Pálmi er öldrunarlæknir: Líkt og að reykja 15 sígarettur á dag – Svona drögum við úr áhrifum ellinnar

Pálmi er öldrunarlæknir: Líkt og að reykja 15 sígarettur á dag – Svona drögum við úr áhrifum ellinnar
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Norska morðgátan sem leysist líklega aldrei – Hver skrifaði bréfið sem var í rauða stólnum?

Norska morðgátan sem leysist líklega aldrei – Hver skrifaði bréfið sem var í rauða stólnum?
Fréttir
Í gær

Lögregla hafði afskipti af manni með leiðindi á spítala

Lögregla hafði afskipti af manni með leiðindi á spítala
Fréttir
Í gær

Ólga í sjónvarpsgeiranum: Missir verkefni til bróður síns sem er kærður fyrir kynferðisbrot gegn dóttur hans

Ólga í sjónvarpsgeiranum: Missir verkefni til bróður síns sem er kærður fyrir kynferðisbrot gegn dóttur hans
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heiðar tjáir sig um Kveiksmálið og segir engin annarleg sjónarmið búa að baki ákvörðuninni

Heiðar tjáir sig um Kveiksmálið og segir engin annarleg sjónarmið búa að baki ákvörðuninni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sverrir tjáir sig um handtökuna – „Hissa á þessu leikriti“

Sverrir tjáir sig um handtökuna – „Hissa á þessu leikriti“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Allt vitlaust út af brottrekstri Maríu Sigrúnar úr Kveik og kollegar grípa til varna – „Eru þau ömurlegu orð Ingólfi Bjarna til ævarandi minnkunar“

Allt vitlaust út af brottrekstri Maríu Sigrúnar úr Kveik og kollegar grípa til varna – „Eru þau ömurlegu orð Ingólfi Bjarna til ævarandi minnkunar“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“