fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
433Sport

Segir hlutverkið hjá Liverpool erfitt en að hann verði að vera klár

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 21. apríl 2026 20:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Freddie Woodman, markvörður Liverpool, kom óvænt inn á í grannaslag gegn Everton um helgina.

Woodman, sem er þriðji kostur í markinu á Anfield, kom inn á eftir meiðsli hjá Giorgi Mamardashvili og lék sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni síðan 2021.

„Hélt ég einhvern tímann að ég myndi spila fyrir Liverpool í úrvalsdeildinni? Sennilega ekki, en þegar kallið kemur vil ég bara gera mitt besta,“ sagði Woodman.

Þessi 29 ára gamli markvörður viðurkennir að hlutverkið sé stundum erfitt.

„Ég er nýr í þessu hlutverki og vissi að ég fengi lítið að spila. Maður er í átta mánuði að undirbúa sig fyrir kannski 10-20 mínútur og þá verður maður bara að vera tilbúinn.“

Vegna meiðsla hjá Alisson Becker gæti Woodman fengið annað tækifæri þegar Liverpool mætir Crystal Palace um næstu helgi.

„Það væri ótrúlegt að fá annan leik í úrvalsdeildinni, sérstaklega fyrir Liverpool,“ sagði Woodman.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Segir frá því þegar frændur tókust á – Endaði með 24 spor í andliti

Segir frá því þegar frændur tókust á – Endaði með 24 spor í andliti
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Spá því að Blikar verji titilinn en að Valur verði í tómu brasi

Spá því að Blikar verji titilinn en að Valur verði í tómu brasi
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Lést um helgina nokkrum dögum eftir að hafa eignast sitt annað barn

Lést um helgina nokkrum dögum eftir að hafa eignast sitt annað barn
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

United tekur fyrsta skrefið – Sagðir hafa boðið væna summu í vonarstjörnu Brasilíu

United tekur fyrsta skrefið – Sagðir hafa boðið væna summu í vonarstjörnu Brasilíu
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

United og spænski risinn sögð skoða Emery

United og spænski risinn sögð skoða Emery
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

PSG skoðar tvo kosti í sóknarlínu sína

PSG skoðar tvo kosti í sóknarlínu sína