fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Íslenskur frumkvöðull lætur að sér kveða á danska bjórmarkaðnum

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 24. október 2021 17:30

Kristján við hluta tækjabúnaðarins í brugghúsinu. Mynd:KK

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristján Sigurleifsson er búsettur í Sønderborg á eyjunni Als í Danmörku. Hann hefur búið þar síðan 2012 en þá var hann ráðinn til starfa hjá Sinfóníuhljómsveit Suður-Jótlands og leikur hann enn með henni. En Kristján hefur fleiri járn í eldinum en að leika með Sinfóníuhljómsveitinni því hann rekur eigið brugghús og framleiðir bjór undir vörumerkjum Harbour Mountain. Það má segja að Kristján sé farinn að láta að sér kveða á danska bjórmarkaðnum sem er allt annað en auðveldur því Danir eru þekktir fyrir mikla bjórdrykkju og áhuga á bjór.

DV kíkti í heimsókn til Kristjáns í bruggverksmiðju hans sem er við Vemmingbund í Broager, sem er hluti af sveitarfélaginu Sønderborg. Þar leigir Kristján aðstöðu til bjórgerðar ásamt vini sínum Kim sem bruggar einnig sinn eigin bjór og selur. Þeir félagar eru sem sagt með sitt hvort fyrirtækið og framleiða sína eigin bjóra en deila húsnæði og hjálpast að eftir því sem þörf krefur.

Harbour Mountain

Kristján framleiðir bjór undir merkjum Harbour Mountain og eru nokkrar tegundir fáanlegar. Hann segist lengi hafa dundað sér við að brugga bjór heima enda mikill bjóráhugamaður og segja megi að það að brugga bjór og tónlist séu helstu áhugamálin og sé hann svo heppinn að geta haft atvinnu af þeim.

Hann byrjaði bjórframleiðslu og sölu fyrr á árinu og hefur allt gengið vel og takmarkast salan á bjórnum við framleiðslugetuna. Það fá ekki allir sem vilja.

Passion heitir ein tegundin sem Kristján framleiðir. Mynd:Facebook/Harbour Mountain

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í upphafi var hann með fjórar tegundir sem byggjast á belgískri brugghefð, tvær sem byggja á bandarískri IPA bjórhefð og einn svokallaðan Stout sem er dökkur og sækir á svipuð mið og hinn írski Guinness.

Bjórar frá Harbour Mountain prýða hillur í sérverslun með bjór í Broager. Mynd:KK

Nú segist Kristján hins vegar vera að breyta aðeins um stefnu og færa sig nær því sem hjarta hans segir. Hann segir að nú séu það meira humlaðir bjórar sem heilla hann mest og sé hann því að taka þá stefnu og víki bjórinn, sem er byggður á belgískri hefð, fyrir vikið. Nú eru sætir og bragðmiklir svokallaðir New England IPA bjórar vinsælir en Kristján stefnir á að brugga það sem hann kallar old school bandarískar týpur sem eru yfirleitt minna sætir og hafa meiri kant. Þess utan finnist honum IPA-bjór mjög spennandi og gaman að brugga hann.

Overture er ein af bjórtegundunum frá Harbour Mountain. Mynd:Facebook/Harbour Mountain

Það leynir sér ekki þegar rætt er við Kristján um bjór að hann hefur mikinn áhuga og þekkingu á bjór og að baki framleiðslunni liggi sönn ástríða.

 

Hann segist hafa gert ákveðin mistök í upphafi og hafi lært af þeim, það sé eiginlega óumflýjanlegt í framleiðslu af þessu tagi.

Auka framleiðslugetuna

Kristján og Kim leigja aðstöðu fyrir bjórframleiðsluna og einnig leigja þeir tækjabúnaðinn af eiganda húsnæðisins. En þar sem framleiðslan og salan hafa gengið vel þá hafa þeir ákveðið að auka framleiðslugetuna og eru búnir að kaupa nýjan og stærri búnað til bruggunar. Þeir kaupa búnaðinn saman og skiptast á að nota hann. Munu þeir þannig þrefalda framleiðslugetu sína. Einnig gerir nýi tækjabúnaðurinn þeim kleift að lengja þann tíma sem ferlið tekur frá upphafi bruggunar þar til bjórinn fer í dós eða á kút og þannig aukast gæði hans enn frekar.

Hér sést hluti af tækjabúnaði þeirra félaga. Mynd:KK

Kristján tappar bjórnum á dósir og í kúta. Kútana kaupir veitingastaðurinn Skaal í Sønderborg og gæti tekið fleiri ef framleiðslugetan leyfði. Hann segir að fleiri veitingastaðir vilji gjarnan fá bjór frá Harbour Mountain en ekki hafi verið hægt að verða við því vegna þess hversu lítil framleiðslugetan er en vonandi takist að bæta aðeins úr þessu með tilkomu nýju bruggtækjanna. Þá hafa sérverslanir með áfengi falast eftir bjór í dósum til sölu en ekki hefur verið hægt að verða við óskum þeirra allra.

Nöfnin sótt í tónlist

Nöfnin á bjórunum eru öll sótt í tónlist og kannski ekki að furða því tónlist er stór þáttur í lífi Kristjáns. Meðal þeirra nafna sem hann hefur valið á bjórinn eru Nocturne, sem er Imperial Stout, en nafnið þýðir Næturljóð og á vel við dökkan og þungan bjór. Rhapsody er nafnið á Indian Pale Ale en nafnið er sótt til bandaríska verksins Rhapsody in Blue sem tengir bjórinn við Bandaríkin því í verkinu mætast jass, blús og klassík. Svona eru öll nöfnin sótt í tónlist og vísa til einkenna hvers bjórs.

Oratorio sækir nafn sitt í tónlistarheiminn eins og aðrir bjórar frá Kristjáni. Mynd:Facebook/Harbour Mountain

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Væri gaman að komast inn á íslenska markaðinn

Aðspurður sagðist Kristján ekki horfa til íslenska markaðarins að sinni enda sé hann bara rétt að stíga fyrstu skrefin í framleiðslunni og nóg að sinna danska markaðnum fyrst um sinn. Hann sagði þó að það gæti verið gaman að komast inn á íslenska markaðinn og það gæti verið spennandi að gera samstarfsbjór með íslensku brugghúsi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Í gær

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“
Fréttir
Í gær

Grunur um manndráp á Akureyri

Grunur um manndráp á Akureyri
Fréttir
Í gær

„Enn eitt dæmi um þær ógöngur sem mannanafnanefnd leiðist út í“

„Enn eitt dæmi um þær ógöngur sem mannanafnanefnd leiðist út í“
Fréttir
Í gær

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fara fram á gæsluvarðhald yfir fjórum erlendum mönnum vegna meints manndráps á Suðurlandi

Fara fram á gæsluvarðhald yfir fjórum erlendum mönnum vegna meints manndráps á Suðurlandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Grunnskólakennari segir neyðarástand ríkja – Mjög fáir nemendur í hverfisskólanum geta lesið fyrirsagnir í dagblöðum við lok 10. bekkjar

Grunnskólakennari segir neyðarástand ríkja – Mjög fáir nemendur í hverfisskólanum geta lesið fyrirsagnir í dagblöðum við lok 10. bekkjar