fbpx
Miðvikudagur 10.júní 2026
Fréttir

Pawel bendir á hræsni Einars – „Miðflokkurinn er mjög hissa að fjölmiðlar vilji ræða þetta stefnumál þeirra“

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 7. maí 2026 17:30

Pawel skýtur fast á Einar og Miðflokkinn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, furðar sig á að Miðflokkurinn í Kópavogi kvarti yfir því að fjölmiðlar spyrji um stefnumál hans. Miðflokkurinn hefur barist gegn flöggun regnbogafánans við skóla í bænum.

„Miðflokkurinn birtir TikTok myndband þar sem hann biður fólk um að setja like ef það vill bara sjá íslenska fánann við grunnskóla (og taka þá niður regnbogafánann sýndur er í mynd),“ segir Pawel í færslu á samfélagsmiðlum.

Vísar hann svo í pallborðsumræður hjá Vísi þar sem oddvitinn Einar Jóhannes Guðnason átti í vök að verjast þegar hann var inntur um þessa stefnu. Í umræðunum dróg hann í land og sagði að flokkurinn vildi ekki aðeins að íslenska fánanum yrði flaggað heldur mættu skólar flagga til dæmis fána sveitarfélagsins eða skólafánanum.

Fór hann í mikla vörn og sagðist ekki skilja hvers vegna væri verið að ræða þetta mál til jafns við leikskólamálin og skipulagsmálin sem dæmi.

Sjá einnig:

Miðflokkurinn í Kópavogi vill láta fjarlægja regnbogafána við alla skóla í bænum

„Miðflokkurinn er mjög hissa að fjölmiðlar vilji ræða þetta stefnumál þeirra. Meiri ofsóknirnar. Own it, Miðflokkur,“ segir Pawel í hæðnistón.

Miðflokkurinn birti hið umdeilda myndband um miðjan síðasta mánuð í kjölfar þess að varaformaður flokksins, Snorri Másson, réðist að regnbogafánanum í ræðu á Alþingi.

„Ef þú vilt frekar sjá íslenska fánann við skóla í Kópavogi settu þá like á þetta vídjó og kjóstu Miðflokkinn 16. maí,“ segir Einar í myndbandinu sem augljóslega var beint gegn regnbogafánanum.  „Við í Miðflokknum viljum að það sé stefna í Kópavogi að einungis íslenski fáninn sem að flaggi við stofnanir. Þetta þarf ekki að vera flókið. Burt með vókið,“ sagði hann.

Skjáskot úr hinu umdeilda myndbandi Miðflokksins.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Íbúar langþreyttir á rútum á Skólavörðuholti – „Þessi staða orðin algjörlega ólíðandi“

Íbúar langþreyttir á rútum á Skólavörðuholti – „Þessi staða orðin algjörlega ólíðandi“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Gífurlega stórt kókaínmál fyrir austan

Gífurlega stórt kókaínmál fyrir austan
Fréttir
Í gær

Gísli Rúnar með lausn á stóra nærbuxnavandamálinu: „Við höfum verið kölluð öllum heimsins nöfnum inni í sturtunni“

Gísli Rúnar með lausn á stóra nærbuxnavandamálinu: „Við höfum verið kölluð öllum heimsins nöfnum inni í sturtunni“
Fréttir
Í gær

424 þúsund krónur hurfu af korti Bjarna – Svo kom svarið frá bankanum sem hann átti ekki von á

424 þúsund krónur hurfu af korti Bjarna – Svo kom svarið frá bankanum sem hann átti ekki von á
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þorsteini var brugðið þegar bandarískur vinur hans sendi honum tvær greinar um konur

Þorsteini var brugðið þegar bandarískur vinur hans sendi honum tvær greinar um konur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ómar hafði ekki erindi sem erfiði í baráttu við SAS – Krafðist 6,5 milljóna en aðeins tæplega 400 þúsund áttu að renna til farþeganna

Ómar hafði ekki erindi sem erfiði í baráttu við SAS – Krafðist 6,5 milljóna en aðeins tæplega 400 þúsund áttu að renna til farþeganna