fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fréttir

Margrét segir Reykjavík minna á Svíþjóð hvað varðar tafir og skriffinnsku – „Umfram allt hef ég þurft að bíða“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 7. maí 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margrét Rós Sigurjónsdóttir, frambjóðandi Viðreisnar í Reykjavík, segir að tafir í afgreiðslu innan stjórnsýslunnar í borginni geti valdið rekstraraðilum gríðarlegu tjóni og vanlíðan. Borgin þurfi að vinna betur með fyrirtækjum og hjálpa þeim að dafna. Þetta kemur fram í grein frambjóðandans hjá Vísi.

Síðustu ár hafa Margrét og eiginmaður hennar tekið þátt í að stofna fjölmörg fyrirtæki, bæði á Íslandi og erlendis. Má þar sem dæmi nefna Serrano, en hjónin fluttu til Svíþjóðar árið 2008 til að opna þar slíkan veitingastað og má nú finna 20 slíka í helstu borgum Svíþjóðar og Danmerkur.

„Í þessum veitingarekstri okkar þurfti ég ítrekað að eiga samskipti við yfirvöld í Stokkhólmi. Það þurfti að ræða við byggingarfulltrúa og áfengisyfirvöld, svara fyrirspurnum og það oft um sama hlutinn. Umfram allt hef ég þurft að bíða.“

Bið sem þessi sé kannski ekki merkileg fyrir embættismenn á skrifstofum borgaryfirvalda en fyrir rekstraraðila geti biðin verið dýrkeypt og valdið bæði fjárhagslegu og tilfinningalegu tjóni: „Vanlíðan vegna óvissu um hvort hægt sé að borga öllum laun á réttum tíma, hvort staðurinn geti hreinlega opnað eða selt bjór.“

Getur ekki leigt út herbergi

Margrét segir að sömu sögu megi segja af Reykjavíkurborg.

„Í síðustu viku hitti ég konu sem rekur hótel þar sem um 30 herbergi hafa beðið samþykkis í margar vikur þrátt fyrir að legið hafi fyrir í mörg ár að þarna eigi að koma hótel. Á meðan getur hún ekki sett herbergin í útleigu með tilheyrandi tekjutapi,“ svona lýsir frambjóðandinn stöðunni í Reykjavík. Hér sé um að ræða bið sem rekstraraðilar hafa enga stjórn á. Að stofna fyrirtæki er að sögn Margrétar ekki auðvelt og margir velta því fyrir sér hvers vegna þeir eru að standa í þessu. Þegar fyrirtæki er stofnað eru engar tekjur fyrir hendi, heldur er þarna von um að tekjur muni skila sér.

„Á hverjum degi í Reykjavík opna hundruð fyrirtækjaeigenda dyrnar á fyrirtækinu sínu og vonast til að fólk komi inn. Það er í raun kraftaverk hvernig hlutirnir ganga upp. Er það ekki magnað að við vitum nokkurn veginn að fullt af fólki mun ákveða að kaupa sér pizzu á Flatey eða minjagrip á Laugaveginum á morgun?“

Það sé að mörgu að huga í fyrirtækjarekstri og ekki sé á það bætandi að borgin auki álagið með töfum og bið. Fyrirtæki þjóna hlutverki í samfélagi borgarinnar og því ættu borgaryfirvöld að vinna með fyrirtækjum frekar en á móti þeim.

„Það er ekki sjálfsagt að Reykvíkingar leggi peningana, tímann og líðan sína að veði til þess eins að bjóða okkur upp á nýja tegund af mat, skyrtum eða klippingu í okkar hverfi. Ég er þakklát fyrir þetta fólk og vil hjálpa því.

Ég býð mig fram í borgarstjórn Reykjavíkur og ég mun leggja mig fram um að borgin vinni betur með fyrirtækjum og þjónusti fólk og hjálpi fyrirtækjum að dafna. Því þá verður borgin betri!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Heimir Már segir hægri menn býsnast yfir innflytjendum – „Staðið undir öllum hagvexti Íslands undanfarin 10-15 ár“

Heimir Már segir hægri menn býsnast yfir innflytjendum – „Staðið undir öllum hagvexti Íslands undanfarin 10-15 ár“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Árni Logi meindýraeyðir ákærður fyrir minkaveiðar – „Þetta er hýenubæli þarna í Þórunnarstræti“

Árni Logi meindýraeyðir ákærður fyrir minkaveiðar – „Þetta er hýenubæli þarna í Þórunnarstræti“
Fréttir
Í gær

Sagði lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu hafa beitt sér harkalega gegn ólögráða syni sínum – Dagbók lögreglunnar sagði allt aðra sögu

Sagði lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu hafa beitt sér harkalega gegn ólögráða syni sínum – Dagbók lögreglunnar sagði allt aðra sögu
Fréttir
Í gær

Allt á suðupunkti í Kópavogi í aðdraganda kosninga: „Þetta heitir misbeiting valds“

Allt á suðupunkti í Kópavogi í aðdraganda kosninga: „Þetta heitir misbeiting valds“