fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fréttir

Afkastageta Gosfélagsins verður um 70 milljónir lítra á ári

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 7. maí 2026 10:50

Brynjar Freyr Valsteinsson. Mynd: Aðsend.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Uppsetning framleiðslulínu Gosfélagsins er í fullum gangi. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að verið er að setja upp tvær framleiðslulínur í drykkjarvöru en vélarnar sem notaðar verða til framleiðslunnar komu til landsins fyrir helgi. Stefnt er að því að framleiðsla á Klaka í plastflöskum hefjist um mánaðamótin maí-júní en framleiðsla á Klaka í dós mánuði síðar.

„Gosfélagið tók yfir sölu og dreifingu á Klaka og Djúsí klaka síðastliðið haust og nú er svo komið að Klaki í tveggja lítra plastflöskum er uppseldur. Nægar birgðir eru af Klaka í dós. Það styttist hins vegar verulega í að við getum aftur boðið upp á Klaka í nýjum, umhverfisvænni plastflöskum en áður, segir Brynjar Freyr Valsteinsson, framkvæmdastjóri Gosfélagsins.

Gosfélagið er nýr íslenskur framleiðandi sem byggir á góðum grunni, eins og segir í tilkynningunni. Félagið er á lokametrunum eð að koma upp 2.000 fermetra aðstöðu í Hafnarfirði og vatnið sem notað er í drykkina kemur úr Kaldárbotnum, sem eru með hreinustu vatnslindum landsins. Eins og er eru aðeins tvö fyrirtæki á Íslandi sem framleiða íslenska gosdrykki og nú bætist Gosfélagið við þá flóru.

„Við ætlum að verða leiðandi í framleiðslu óáfengra drykkja. Klaki hefur notið vaxandi vinsælda meðal Íslendinga undanfarin ár enda drykkirnir ferskir og svalandi. Með nýju framleiðslulínunni tryggjum við gæði og öryggi vörunnar en afkastagetan verður um 70 milljón lítrar á ári. Framleiðslan á Klaka er fyrsta skrefið en í framtíðinni stefnum við á að auka við hana og kynna til sögunnar nýja og spennandi drykki,“ segir Brynjar.

Það eru þeir Brynjar Freyr Valsteinsson og Kristján Elvar Guðlaugsson sem standa að baki Gosfélaginu ásamt fjárfestunum Ásgeiri Johansen og Lofti Bjarna Gíslasyni. Brynjar Freyr og Kristján Elvar þekkja vel til drykkjaframleiðslu á Íslandi en þeir þekkja dagvörumarkaðinn mjög vel og hafa yfir 20 ára reynslu á því sviði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Edition-málið – Móðirin sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana svo í hjartað

Edition-málið – Móðirin sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana svo í hjartað
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“
Fréttir
Í gær

Andri er sleginn: „Undirbúningurinn sem ég fékk var nánast verri en enginn“

Andri er sleginn: „Undirbúningurinn sem ég fékk var nánast verri en enginn“
Fréttir
Í gær

Skipulagsbreytingar formanns Miðflokksins og gervigreindar – „Alveg hissa að formaðurinn hafi ekki búið til fleiri bílastæði“

Skipulagsbreytingar formanns Miðflokksins og gervigreindar – „Alveg hissa að formaðurinn hafi ekki búið til fleiri bílastæði“
Fréttir
Í gær

Helga varð fyrir vonbrigðum með Ásdísi – „Nýta atkvæðið til að fella meirihlutann og koma í veg fyrir að bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins haldi áfram“

Helga varð fyrir vonbrigðum með Ásdísi – „Nýta atkvæðið til að fella meirihlutann og koma í veg fyrir að bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins haldi áfram“
Fréttir
Í gær

Kona sem sofnaði undir stýri á Suðurlandsvegi og olli alvarlegu slysi dregin fyrir dóm

Kona sem sofnaði undir stýri á Suðurlandsvegi og olli alvarlegu slysi dregin fyrir dóm