fbpx
Miðvikudagur 10.júní 2026
Fréttir

Eineltishrottar verða hýddir í skólanum

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 7. maí 2026 13:30

Aðeins þar til bærir kennarar mega hýða drengina. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Drengir sem beita einelti í skólum í Singapúr munu verða hýddir með priki. Það sam á við þá sem beita einelti á netinu.

Breska blaðið The Independent greinir frá þessum nýju reglum í skólum Singapúr.

Hýðingar eru alls ekki framandi refsing í borgríkinu. Er algengt að karlmenn yngri en 50 séu hýddir fyrir alls kyns glæpi, allt að 24 sinnum. Lögin heimila hýðingar kvenna einnig. Hafa hýðingar oft verið harðlega gagnrýndar af alþjóðlegum mannréttindasamtökum.

Í reglunum, sem menntamálaráðuneyti Singapúr, kynnti í vikunni má hýða drengi, 9 ára og eldri, allt að þrisvar sinnum ef þeir eru fundnir sekir um að beita einelti í skólum. Að sögn Desmond Lee, menntamálaráðherra, verður úrræðið þó aðeins notað til þrautavara.

„Það verður farið eftir ströngum reglum til að tryggja öryggi nemenda. Hýðingarnar verða að vera samþykktar af skólastjóra og aðeins þar til bærir kennarar mega beita þeim,“ segir Lee.

Eiga hýðingarnar að fá þann sem beitir einelti að læra af mistökum sínum og skilja alvarleika málsins. Eftirfylgni verður beitt til þess að sjá hvernig nemandinn bregst við. Verður honum boðin ráðgjöf eftir hýðinguna.

Stúlkur sem beita einelti verða ekki hýddar en þær munu fá annars konar refsingar. Svo sem eftirsetu í skólanum eða brottvísun.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Íbúar langþreyttir á rútum á Skólavörðuholti – „Þessi staða orðin algjörlega ólíðandi“

Íbúar langþreyttir á rútum á Skólavörðuholti – „Þessi staða orðin algjörlega ólíðandi“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Gífurlega stórt kókaínmál fyrir austan

Gífurlega stórt kókaínmál fyrir austan
Fréttir
Í gær

Gísli Rúnar með lausn á stóra nærbuxnavandamálinu: „Við höfum verið kölluð öllum heimsins nöfnum inni í sturtunni“

Gísli Rúnar með lausn á stóra nærbuxnavandamálinu: „Við höfum verið kölluð öllum heimsins nöfnum inni í sturtunni“
Fréttir
Í gær

424 þúsund krónur hurfu af korti Bjarna – Svo kom svarið frá bankanum sem hann átti ekki von á

424 þúsund krónur hurfu af korti Bjarna – Svo kom svarið frá bankanum sem hann átti ekki von á
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þorsteini var brugðið þegar bandarískur vinur hans sendi honum tvær greinar um konur

Þorsteini var brugðið þegar bandarískur vinur hans sendi honum tvær greinar um konur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ómar hafði ekki erindi sem erfiði í baráttu við SAS – Krafðist 6,5 milljóna en aðeins tæplega 400 þúsund áttu að renna til farþeganna

Ómar hafði ekki erindi sem erfiði í baráttu við SAS – Krafðist 6,5 milljóna en aðeins tæplega 400 þúsund áttu að renna til farþeganna