fbpx
Miðvikudagur 10.júní 2026
Fréttir

Björg Magnúsdóttir: Viljum meiri tengingu milli skóla og frístunda – íþróttir mikilvægar fyrir inngildingu

Eyjan
Fimmtudaginn 7. maí 2026 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þriðja sætið er baráttusætið hjá Viðreisn í Reykjavík. Í þriðja sætinu er Þorvaldur Davíð Kristjánsson, leikari og hagfræðingur og Þróttari. Nánari tenging skóla og íþrótta-/frístundastarfs er æskileg og íþróttastarfið er mikilvægt t.d. hvað varðar inngildingu í íslenskt samfélag fyrir þá sem hingað flytjast. Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:

Eyjan Björg Magnúsdóttir - 1
play-sharp-fill

Eyjan Björg Magnúsdóttir - 1

Það má segja að það sé bara endaspretturinn eftir. Skoðanakannanir hafa verið misvísandi en eins og síðustu kannanir komu út, þá kemur upp flókin staða í Reykjavík. Viðreisn er með tvo menn, þriðji maðurinn, það er baráttusætið.

„Það er baráttusætið og þar er nú mikill öðlingsmaður hjá okkur í Viðreisn, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, leikari og fjölskyldumaður, sem hefur ákveðið að demba sér í pólitíkina . Ég held nú að Reykvíkingar væru afar vel settir með þennan góða mann í borgarstjórn.“

Já, og hann er ekki bara leikari, er hann ekki með hagfræðigráðu frá Oxford?

Hann er með hagfræðigráðu frá Oxford og var í Juilliard, einum frægasta leiklistarskóla í heimi. Hefur búið í Bandaríkjunum og í Bretlandi. Svo er hann auðvitað líka búinn að vera að skrifa leikrit og barnabækur og er þriggja barna faðir og Þróttari, ég fæ að heyra það á hverjum einasta degi, hann er mikill köttari, hann er bara svona alvörumaður. Það er ekki hægt að segja neitt vont um hann Þorvald Davíð.“

Það er náttúrlega enginn fullkominn. Við bara fyrirgefum honum það að vera Þróttari.

„Við fyrirgefum, já, já. Ég er nú komin í Víkingshverfið þannig að það gerist ýmislegt í þessum íþróttaliðum.“

Já, já. Það er hins vegar bara mjög jákvætt og ég held að það skipti mjög miklu máli. Það er þessi tenging við íþróttastarf og íþróttafélögin, þau spila mjög stórt hlutverk í samfélaginu.

„Þau gera það, þau gera það og þetta er auðvitað bara það sem heldur mörgum hverfum og mörgum fjölskyldum gangandi og bara fjölskyldur gefa sinn tíma í þetta . Þarna fá börnin að rækta með sér félagsfærni og hæfileika í íþróttum, láta reyna á sig og kljást við andstæðinga og finna út úr hlutunum og svona. Þetta er bara það sem elur okkur upp að mörgu leyti. Ég var nú að tala við hana Hafrúnu formann Vals. Hún er nú reyndar á öðrum framboðslista en það gildir einu. Hún er góð kona. Og var einmitt að segja mér, og við sjáum það líka í íþróttastarfi, það er svo ofboðslega mikilvægt upp á inngildingu. Þegar fólk er að flytjast, fjölskyldur eru að flytjast bara hvaðanæva úr heiminum, koma inn í íþróttastarfið. Þar fer rosalega mikil inngilding fram og fólk lærir á íslensku siðina og fólk fer að tala saman og vinna saman og svo er verið að safna hérna fjáröflun og fara á mót og hitt og þetta. Þannig að þetta er svo falleg svona samvinnuhugsjón sem er inni í þessum félögum. Það eru bara allar hendur á dekki.“

Það er skólinn og það eru íþróttirnar og þetta helst dálítið í hendur. Þó þetta séu aðskildir þættir þá er þetta náttúrulega, krakkar þau mynda félagstengsl í skólanum og í íþróttafélaginu og oft eru þetta sömu hóparnir.

„Já og við í Viðreisn myndum bara sjá meiri tengingu þarna á milli, meiri tengingu milli skólans og svo frístunda og íþróttanna. Þannig að þetta sé svona meiri samfella í þessu. En það er líka ef þú spáir aðeins í það að til dæmis ef það væri eitthvað starfsfólk sem flæðir meira á milli, að það séu einhverjir skólaliðar sem fylgja svo krökkunum eftir á fótboltaæfingu, þá eru bara fleiri hendur á dekkinu, fleiri aðilar til staðar að fylgjast með hvað er í gangi og hjálpa til þegar þörf er á. Ég held að það myndi hjálpa öllu að hafa meiri samfellu og meiri snertingu þarna á milli, meiri samþættingu.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Íbúar langþreyttir á rútum á Skólavörðuholti – „Þessi staða orðin algjörlega ólíðandi“

Íbúar langþreyttir á rútum á Skólavörðuholti – „Þessi staða orðin algjörlega ólíðandi“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Gífurlega stórt kókaínmál fyrir austan

Gífurlega stórt kókaínmál fyrir austan
Fréttir
Í gær

Gísli Rúnar með lausn á stóra nærbuxnavandamálinu: „Við höfum verið kölluð öllum heimsins nöfnum inni í sturtunni“

Gísli Rúnar með lausn á stóra nærbuxnavandamálinu: „Við höfum verið kölluð öllum heimsins nöfnum inni í sturtunni“
Fréttir
Í gær

424 þúsund krónur hurfu af korti Bjarna – Svo kom svarið frá bankanum sem hann átti ekki von á

424 þúsund krónur hurfu af korti Bjarna – Svo kom svarið frá bankanum sem hann átti ekki von á
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þorsteini var brugðið þegar bandarískur vinur hans sendi honum tvær greinar um konur

Þorsteini var brugðið þegar bandarískur vinur hans sendi honum tvær greinar um konur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ómar hafði ekki erindi sem erfiði í baráttu við SAS – Krafðist 6,5 milljóna en aðeins tæplega 400 þúsund áttu að renna til farþeganna

Ómar hafði ekki erindi sem erfiði í baráttu við SAS – Krafðist 6,5 milljóna en aðeins tæplega 400 þúsund áttu að renna til farþeganna
Hide picture