fbpx
Miðvikudagur 10.júní 2026
Fréttir

Ari segir svör stjórnmálamanna hafa verið sláandi – „Allir sögðu nei“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 7. maí 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þegar stjórnmálafólk, þvert á flokka, treystir því ekki að börnin þeirra geti byggt upp öruggt líf á leigumarkaði, þá er ljóst að kerfið hefur brugðist,“ segir Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, í aðsendri grein sem birtist á vef Vísis í morgun.

Þar gerir hann stöðu leigumarkaðarins að umtalsefni og vísar í pallborðsumræður sem fóru fram á dögunum á vegum Leigjendasamtakanna. Þar sátu fulltrúar allra framboða til borgarstjórnarkosninga fyrir svörum.

„Ein spurning stóð upp úr, einföld en afdráttarlaus: „Myndir þú treysta því að barnið þitt gæti byggt upp öruggt líf á leigumarkaði á Íslandi í dag?“ Niðurstaðan var sláandi. Allir sögðu NEI.”

Kerfið er að bregðast

Segir Ari að þegar stjórnmálamenn, þvert á flokka, treysti ekki kerfinu fyrir eigin börnum, þá sé ljóst að eitthvað alvarlegt er að.

„Húsnæðisöryggi er ekki lúxus, það er ein af grunnstoðum velferðarsamfélags borgarinnar. Kerfið er að bregðast,“ segir hann í grein sinni.

Í greininni vísar Ari til þess að húsnæðiskostnaður heimila hafi hækkað úr 19 prósentum í 30 prósent af ráðstöfunartekjum á síðustu tveimur áratugum. Hann segir þá þróun hafa dregið verulega úr ráðstöfunartekjum fólks, fólk hafi minna á milli handanna þar sem húsnæði étur upp sífellt stærri hluta tekna.

Afleiðing pólitískra ákvarðana

Ari rekur þróunina meðal annars til skipulagsstefnu Reykjavíkurborgar og svokallaðra vaxtarmarka á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir að með of mikilli áherslu á þéttingu byggðar og takmörkuðu framboði lóða hafi skapast viðvarandi skortur á byggingarlandi sem hafi þrýst fasteigna- og leiguverði upp.

„Þessi þróun er ekki náttúrulögmál. Hún er afleiðing pólitískra ákvarðana,“ skrifar hann í grein sinni.

Í greininni segir Ari að stefnan hafi komið harðast niður á ungu fólki, tekjulægri hópum, leigjendum og barnafjölskyldum. Hann vísar þar meðal annars til þess að stór hluti leigjenda verji yfir 40 prósentum tekna sinna í húsnæði.

Ari segir að Miðflokkurinn vilji meðal annars auka framboð lóða og byggingarlands, endurskoða skipulag og vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins og lækka húsnæðiskostnað heimila. Hann segir að breytinga sé þörf.

„Þegar stjórnmálafólk, þvert á flokka, treystir því ekki að börnin þeirra geti byggt upp öruggt líf á leigumarkaði, þá er ljóst að kerfið hefur brugðist. Þetta er staða sem ég sætti mig ekki við. Sem oddviti Miðflokksins segi ég skýrt: við munum hlusta á þetta ákall og breyta kúrsinum. Við ætlum að setja þarfir Reykvíkinga ofar stefnum sem hafa brugðist, tryggja aukið framboð og lækka húsnæðiskostnað.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Innflytjendur 19,6% íbúa landsins – Voru 7,4% fyrir 14 árum

Innflytjendur 19,6% íbúa landsins – Voru 7,4% fyrir 14 árum
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Sólveig Anna stígur fram með ákvörðun sína: „Stillið ykkur um að kalla mig fávita, aumingja eða drullusokk“

Sólveig Anna stígur fram með ákvörðun sína: „Stillið ykkur um að kalla mig fávita, aumingja eða drullusokk“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Rússar óttuðust njósnir og slökktu á öryggismyndavélakerfi Pútíns

Rússar óttuðust njósnir og slökktu á öryggismyndavélakerfi Pútíns
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Brynhildur segir nýja tegund fitufordóma ryðja sér til rúms: „Má ég vera feit?“

Brynhildur segir nýja tegund fitufordóma ryðja sér til rúms: „Má ég vera feit?“
Fréttir
Í gær

Ótrúleg þrautaganga Hveitispotta – „Eftir allt þetta, er hann ennþá ljúfur sem lamb“

Ótrúleg þrautaganga Hveitispotta – „Eftir allt þetta, er hann ennþá ljúfur sem lamb“
Fréttir
Í gær

Sérsveitin taldi mann brotlegan sem slapp með skrekkinn eftir að hafa kennt huldumanni um

Sérsveitin taldi mann brotlegan sem slapp með skrekkinn eftir að hafa kennt huldumanni um