Helgarblað DV er komið út.
Í helgarblaði DV föstudaginn 11. janúar er viðtal við Sigurð G. Tómasson, fyrrverandi fjölmiðlamann, sem segir Sjálfstæðisflokkinn hafa bolað sér úr starfi, viðtal við Eydísi Eir Brynju-Björnsdóttur, sem var nauðgað í Tyrklandi, og fangelsuð eftir að hún leitaði réttar síns, og viðtal við Katrínu Sif Einarsdóttur, sem hefur heimsótt 217 lönd.
Í Tímavél vikunnar er talað við Jóhann Wathne, sem ásamt félögum sínum fann grafin mannabein við Faxaskjól í Reykjavík, og fjallað um ísbjörn sem var hengdur við borðstokkinn á línubát.
DV tónlist tekur viðtal við Hjaltalín, á Matarsíðunni er farið yfir uppáhaldsmat þingmanna og í Sportinu er fjallað um framboð Geirs Þorsteinnar til formanns KSÍ, en hann hefur ekki svarað ítrekuðum skilaboðum DV.
Fjallað er um sorglegt fráfall fanga á Litla-Hrauni, starfsmann á Samgöngustofu sem hóf aldrei störf vegna refsidóms og líkamsárás, sem átti sér stað á skemmtistaðnum KIKI.
Þetta og margt fleira í helgarblaði DV, fáðu þér áskrift hér.