

Helgarblað DV er komið út.
Í helgarblaði DV föstudaginn 4. janúar er viðtal við Malín Brand blaðamann og bílaáhugakonu, sem er komin í draumastarfið, sem kom óvænt til hennar þegar hún afplánaði refsingu fyrir eitt umtalaðasta mál undanfarinna ára, og viðtal við listmálarann Þránd Þórarinsson, sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir ögrandi málverk sín.
Í Tímavél vikunnar er fjallað um nasistaforingjann Hermann Göring, sem sótti fálka frá Íslandi og umfjöllun um Hjört Þórðarson, einn merkasta vísindamann Íslands.
Á Matarsíðunni er farið yfir matartrend nýs árs og í Sportinu svara þekktir einstaklingar hvaða liði þeir halda með í enska.
Fjallað er um mál Ólafs Willam Hand, sem hlaut dóm fyrir jól fyrir líkamsárás á barnsmóður sína, áframhaldandi umfjöllun um Braggamálið, ástamál fræga fólksins og mál Guðmundu Jennýjar Hermannsdóttur, sem var rekin úr vinnu sinni í Grindavík fyrir að neita að skipta um stéttarfélag.
Þetta og margt fleira í helgarblaði DV, fáðu þér áskrift hér.