fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

15. ágúst 1977 – WOW!

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 24. september 2018 17:00

Fáum við fljótlega svar við spurningunni um hvort við erum ein í alheiminum?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðfaranótt 15. ágúst 1977 var eins og hver önnur næturvakt í Big Ear útvarpssjónaukanum hjá The Ohio State University í Bandaríkjunum. Skyndilega nam tækjabúnaðurinn öðruvísi merki en venjulega. Það varði í 72 sekúndur og var „hávært“ og mun sterkara en önnu merki sem bárust utan úr himingeimnum þessa nótt. Merkið var einnig á þröngu tíðnisviði, það náði aðeins yfir mjög lítið tíðnisvið, svipað og gervimerki.  Merkið var á tíðninni 1,420 megahertz sem er einnig kölluð 21 sentimetra línan. Það er sama tíðni og útvarpsbylgjur sem hlutlaus vetnisgös úti í geimnum senda frá sér. Þessi tíðni er að mestu laus við hljóðtruflanir frá öðrum hlutum. Einn þeirra vísindamanna sem unnu í Big Ear hafði mikinn áhuga á þessari tíðni í leitinni að merkjasendingum frá vitsmunaverum utan jarðarinnar og taldi að tíðnin gæti verið notuð til að senda skilaboð um óravíddir alheimsins.

Merkið var ekki endurtekið og síðari tilraunir til að finna það báru ekki árangur. Á þessum tíma var Big Ear útvarpssjónaukinn notaður til að leita að merkjasendingum frá vitsmunaverum utan jarðarinnar en enginn hafði búist við að sjá neitt í líkingu við þetta merki og það heyrðist aldrei aftur í Big Ear. Þar sem fleiri merki bárust ekki var ómögulegt að segja mikið um merkið og það var líka erfitt að rekja uppruna þess, hvaðan það var sent, vegna þess hversu skammvinnt það var. Það virtist koma frá Bogmannsmerkinu en ekki var hægt að segja til um það með fullri vissu.

Stjörnufræðingurinn Jerry R. Ehman tók eftir merkinu nokkrum dögum síðar þegar hann var að fara yfir gögn sem Big Ear hafði numið. Hann skrifaði þá WOW! með rauðum penna á útprentun á merkinu og gerði hring utan um það. Það varð síðan þekkt sem WOW! merkið.

Wow! merkið fræga

Ehman og fleiri stjörnufræðingar reyndu ítrekað að nema merkið aftur og bera kennsl á það og uppruna þess. Reiknað var með að merkið myndi heyrast með þriggja mínútna millibili í móttökuhornum útvarpssjónaukans en það gerðist ekki. Ehman reyndi í marga mánuði að finna merkið aftur eftir að Big Ear nam það fyrst en án árangurs.

1987 og 1989 leitaði Robert H. Gray að merkinu með því að nota META loftnetssamstæðuna í Oak Ridge Observatory en hann fann það ekki. Það sama var uppi á teningnum 1995 þegar H. Paul Shuch, forstjóri SETI (sem er verkefni sem snýst um að leita að vitsmunalífi utan jarðarinnar), gerði nokkrar tilraunir með 12 metra útvarpssjónauka hjá National Radio Astronomy Observatory í Green Bank í Vestur-Virginíu. Hann gerði aðra tilraun, sem stóð frá 1995 til 1996, og notaði þá Very Large Array, sem er miklu nákvæmari en Big Ear en niðurstaðan var sú sama, ekkert heyrðist.

Árið 2012 voru 35 ár liðin frá því að WOW! merkið heyrðist. Til að halda upp á það var straumur stafrænna merkja sendur frá Arecibo stjörnuathugunarstöðinni í átt að upptakasvæði merkisins. Sendingin samanstóð af um 10.000 Twitter-skilaboðum sem voru samin sérstaklega af þessu tilefni af National Geographic Channel og var myllumerkið #Chasing UFOs notað en það var um leið kynning á samnefndri þáttaröð sjónvarpsstöðvarinnar. Einnig fylgdu með stutt myndskeið þar sem frægt fólk flutti stutt skilaboð.

Margar kenningar hafa verið settar fram í gegnum tíðina um uppruna merkisins. Því hefur verið varpað fram að það hafi átt náttúruleg upptök. Aðrir hafa haldið því fram að það hafi verið af völdum vitsmunavera. En þær skýringar sem voru settar fram skýrðu merkið ekki og áratugum saman var það talið sterkasti möguleikinn á að við hefðum numið merkjasendingu frá vitsmunaverum utan jarðarinnar.

40 árum síðar töldu vísindamenn sig hafa leyst málið

Eins og gefur að skilja höfðu vísindamenn og áhugamenn um rannsóknir á himingeimnum velt þessu máli fyrir sér í gegnum tíðina. Það var síðan á síðasta ári sem vísindamenn töldu sig hafa fundið skýringuna á uppruna hins dularfulla WOW! merkis. Þá stigu vísindamenn við the Centre of Planetary Science fram og sögðust hafa skýringu á hugsanlegum uppruna merkisins. Þeir sögðust telja að merkið hafi komið frá halastjörnu sem ekki hafi verið þekkt 1977 þegar merkið barst til Big Ear. Nánar tiltekið sögðu þeir að merkið hafi komið frá vetnisskýi sem fylgdi halastjörnunni. Þeir sögðu að hreyfingar halastjörnunnar skýrðu af hverju merkið hafi aldrei heyrst aftur. Tvær halastjörnur voru á ferð um himingeiminn, á því svæði sem talið er að Big Ear hafi numið merkið frá, 1977 en á þeim tíma var ekki vitað um tilvist þeirra. Þær birtust aftur á himinhvolfinu frá nóvember 2016 þar til í febrúar 2017 og þá höfðu vísindamenn tækifæri til að prófa kenningu sína. Að þeirra sögn pössuðu merkin sem bárust frá þeim við WOW! merkið sem Big Ear útvarpssjónaukinn nam 40 árum áður. Til að staðfesta þetta enn betur rannsökuðu þeir merki frá þremur halastjörnum til viðbótar og fengu svipaðar niðurstöður. Vísindamennirnir segja að þeir geti ekki sagt til um með fullri vissu að WOW! merkið hafi borist frá þessum tveimur halastjörnum en geti með nokkuð mikilli vissu sagt að það hafi átt uppruna sinn hjá einhvers konar halastjörnu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 3 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“